Taílenskir ráðamenn niðurlægðir Guðsteinn Bjarnason skrifar 30. janúar 2014 11:45 Auðmjúklega beðið um leyfi. Vísir/AP
Háttsettir embættismenn í Taílandi hafa þurft að fara á fund mótmælenda til þess að biðja sérstaklega um leyfi til að fá að nota skrifstofur sínar. Þeir hafa margir hverjir ekki komist í vinnuna í tvær vikur eftir að mótmælendur lögðu undir sig nokkrar stjórnarbyggingar. Einn af leiðtogum mótmælenda, munkurinn Luang Pu Buddha Issara, tók á móti þeim, þar sem hann sat við skrifborð, klæddur gulum munkakufli, í allra augsýn. „Við grátbiðjum um miskunn þína,” sagði Adul Norangsak, aðstoðarlögreglustjóri í Bangkok, og hneigði sig djúpt í virðingarskyni. Þetta þótti töluverð niðurlæging fyrir stjórnvöld, sem boðað hafa til kosninga á sunnudaginn kemur. Margt hefur setið á hakanum hjá stjórnvöldum þessar tvær vikur, sem aðgangur að skrifstofubyggingum hefur verið lokaður. Meðal annars hefur ekki verið hægt að afgreiða umsóknir um vegabréf, og hafa þær hrannast upp óafgreiddar. Þá þarf að afgreiða gjaldþrotabeiðnir og einn embættismaðurinn vildi ólmur komast í umhverfisgögn. „Búddha lávarður kenndi eitt sinn að allt eigi sér orsök. Í þetta skiptið er orsökin þessi ríkisstjórn,” var svar munksins, og átti við að ríkisstjórnin sé orsök vandans sem við blasir nú. Ríkisstjórn Shinglucks Shinawatra komst til valda eftir að hafa unnið glæsilegan kosningasigur fyrir tveimur og hálfu ári. Mótmælendur krefjast þess að hún láti af völdum, en vilja ekki kosningar enda nokuð öruggt að núverandi stjórn haldi velli. Þess í stað vill stjórnarandstaðan að við taki bráðabirgðastjórn sem fái það hlutverk að breyta stjórnskipan landsins áður en efnt verði til kosninga.
Mest lesið Pakistan segir Indland mögulega gera árás á næstu klukkustundum Erlent Skiptar skoðanir á stöðvarskyldu: „Held að enginn vilji hverfa aftur í það ástand“ Innlent Njósnaaðgerðir sagðar tengjast deilum tveggja af auðugustu mönnum landsins Innlent „Miklu svakalegra en ég gerði mér grein fyrir“ Innlent Árásarmannsins enn leitað Erlent Boðar brottfararstöð fyrir hælisleitendur Innlent Furðar sig á umdeildri Exit-auglýsingu og hækkar veiðigjöldin Innlent „Viltu ekki tala við mig eins og ég sé gamalmenni“ Innlent Selfyssingar buðu lægst í brúasmíði á Vestfjörðum Innlent Varðstjóri leystur undan vinnuskyldu vegna gruns um njósnir Innlent Fleiri fréttir Pakistan segir Indland mögulega gera árás á næstu klukkustundum Árásarmannsins enn leitað Þrír látnir eftir skotárás í Uppsölum Fella niður hluta ákæru á hendur meintum sveppamorðingja Íhuga að loka Everest öðrum en reyndu göngufólki Bannað að selja auðmönnum evrópskan ríkisborgararétt Orsakir rafmagnsleysisins sögulega enn óþekktar Fjórir létust þegar bíl var ekið í gegnum frístundaheimili Allt að komast í samt lag á Spáni og í Portúgal Carney og Frjálslyndir fóru með sigur af hólmi Rafmagn að koma aftur á: Íslendingar lýsa mikilli óvissu Spennan eykst milli Indlands og Pakistan Allt í rugli á Rauðahafi Hvetur Kanadamenn að kjósa sig Lýsir yfir einhliða vopnahléi vegna sigurhátíðar í næstu viku Rafmagnsleysið „fordæmalaust“ en engar vísbendingar um tölvuárás Páfakjör hefst í næstu viku Umfangsmiklar og óútskýrðar rafmagnstruflanir á Íberíuskaga Mæðgur alvarlega særðar eftir sprengingu í úthverfi Stokkhólms Rússar segjast hafa handsamað morðingja herforingjans Ökumaðurinn í Vancouver ákærður fyrir manndráp Sixtínsku kapellunni lokað vegna páfakjörs Telur að Selenskí geti samþykkt að gefa eftir Krímskaga Kjördagur framundan í Kanada Vissu ekki að þeir væru að ræna Kim Kardashian Ellefu manns látnir og talan gæti hækkað Rúmur helmingur óhress með Trump Eðlilegt að endurskoða sjálfstjórnarlögin Framtíðin sé járntjald frá Finnlandi niður að Svartahafi Gröf Frans páfa opin gestum Sjá meira