Menning

Diddú kemur fram í Fríkirkjunni

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Diddú kemur fram í Fríkirkjunni á morgun.
Diddú kemur fram í Fríkirkjunni á morgun. visir/gva
Tónleikaröðin Ljáðu mér eyra er farin af stað á ný í Fríkirkjunni en söngkonan Diddú kemur fram á tónleikunum á morgun, miðvikudag og hefjast tónleikarnir klukkan 12.15. Um er að ræða hálftíma tónleika en með Diddú leikur píanóleikarinn Gerrit Schuil, sem er jafnframt listrænn stjórnandi þeirra.

Tónleikagestir fá ekki að vita fyrirfram efnisskrá tónleikanna og er þetta því spennandi óvissuferð.Tónleikaröðin stendur til 9. apríl og verður alltaf á hverjum miðvikudegi og kostar einungis þúsund krónur inn.

Gerrit Schuil hefur unnið hug og hjörtu hlustenda fyrir meðleik sinn og hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem tónlistarflytjandi ársins fyrir samvinnu sína og Ágústs Ólafssonar í ljóðaflokkum Schuberts árið 2011.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.