Gaf 300 aðdáendum eiginhandaáritun
Gunnar gaf 300 heppnum aðdáendum eiginhandaáritun í London í morgun.
Gríðarleg eftirvænting er fyrir bardaganum hér á landi og verður hann í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Gunnar snýr nú aftur í hringinn eftir langvarandi meiðsli en síðast barðist hann við Jorge Santiago í London fyrir rúmu ári.
Gunnar flaug út í gær ásamt Haraldi Nelson, föður sínum og umboðsmanni, og Jóni Viðari Arnþórssyni, formanni bardagaíþróttafélagsins Mjölnis sem Gunnar keppir fyrir.
Tengdar fréttir
Leiðin að búrinu: Gunnar Nelson vs. Omari Akhmedov
Nú er aðeins vika í stærsta bardaga Íslandssögunnar! Gunnar Nelson berst gegn hinum rússneska Omari Akhmedov þann 8. mars í London og er bardaginn í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Síðasta æfing Gunnars á Íslandi
Það er heldur betur farið að styttast í bardaga Gunnars Nelson í London. Hann fer fram þann 8. mars næstkomandi.
Gunnar Nelson flaug til London í morgun | Þriðji UFC-bardaginn handan við hornið
Gunnar Nelson er mættur til London þar sem hann berst við Rússann Omari Akhmedov á laugardaginn.
Gunnar í sínu besta formi
Bardagakappinn Gunnar Nelson verður í eldlínunni laugardaginn 8. mars þegar hann stígur í búrið í sínum þriðja UFC-bardaga. Hann berst við Omari Akhmedov frá Rússlandi í London og bardaginn verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Gunnar Nelson og Ólafur Ragnar í Leifsstöð
Gunnar Nelson er nú á leið til London þar sem hann mun berjast við Rússann Omari Akhmedov á laugardaginn.
Greining á Omari Ahkmedov, andstæðingi Gunnars
Það styttist óðum í stærsta bardaga Íslandssögunnar þegar Gunnar Nelson snýr aftur í búrið og mætir Rússanum ógurlega, Omari Akhmedov, í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. En hver er þessi Akhmedov og hverjir eru helstu styrkleikar og veikleikar hans?
Þjálfari Gunnars Nelson: Enginn stjórnar sjálfum sér betur en Gunnar
Gunnar Nelson er á leiðinni til London þar sem hann mætir Rússanum Omari Akhmedov í UFC-bardaga í í O2 Arena um næstu helgi. Akhmedov hefur ekki tapaða bardaga eins og Gunnar. John Kavanagh, írskur MMA-þjálfari Gunnars, ræddi við Guðjón Guðmundsson í kvöldfréttum Stöðvar tvö.
Gunnar: Nauðsynlegt að hlusta á líkamann
Það er mikið fjallað um Gunnar Nelson í aðdraganda bardaga hans gegn Omari Akhmedov sem fer fram í London á laugardag.