Tíska og hönnun

Valdi kjólinn tíu mínútum fyrir Óskarinn

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikkonan Cate Blanchett hlaut verðlaun á Óskarnum í gær fyrir bestan leik í aðalhlutverki í kvikmyndinni Blue Jasmine.

Cate klæddist kjól frá Giorgio Armani og var vægast sagt stórglæsileg. Hún átti þó í erfiðleikum með að velja í hvaða kjól hún ætti að vera á þessum mikilvæga viðburði.

„Valið stóð á milli herra Armani, herra Armani og herra Armani. Valið stóð á milli þriggja kjóla og ég ákvað mig tíu mínútum áður en ég lagði af stað,“ segir Cate.


Tengdar fréttir

Hámaði í sig pítsu

Leikarinn Brad Pitt fékk sér hressingu á Óskarsverðlaunahátíðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×