Lífið

Sigruðu netkosningu um skrýtnustu búningana

Ellý Ármanns skrifar
Danska ríkisútvarpið, DR, setti af stað kosningu um skrýtnustu búningana í Eurovision í ár og viti menn, íslensku keppendurnir Pollapönk sigruðu með 37% atkvæða.  Eins og frægt er orðið klæðast meðlimir Pollapönk Henson göllum í einkennislitum hvers og eins ásamt jakkafötum í sömu litum.  

Á eftir Pollapönk í valinu um athyglisverða búninga er keppandi frá Moldóvu sem klæðist kjól sem er gerður úr silki og stáli. Þá er ítalski keppandinn sískiptandi um búninga eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.