Samfylkingin er stærsti flokkurinn í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun sem Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands gerði fyrir Morgunblaðið. Meirihlutinn í borgarstjórn heldur velli.
Könnunin var gerð dagana 30. apríl til 6. maí. Fylgi Samfylkingarinnar mælist nú 30,3 prósent og fengi flokkurinn fimm borgarfulltrúa, en hefur þrjá núna. Fylgið hefur aukist frá síðustu könnun í mars og verulega frá kosningunum árið 2010, þegar flokkurinn fékk 19,1 prósent atkvæða. Sjálfstæðisflokkurinn fær 27,2 prósent kjósenda og fengi einnig fimm borgarfulltrúa eins og flokkurinn hefur nú. Þetta er meira en í síðustu könnun Félagsvísindastofnunar í mars en öllu minna fylgi en í kosningunum fyrir fjórum árum þegar flokkurinn fékk 33,6 prósent atkvæða.
Björt framtíð, áður Besti flokkurinn, er með 19,7 prósent fylgi og fengi samkvæmt könnuninni þrjá menn. Þetta er talsvert minna en í sambærilegri könnun sem gerð var í mars en þá mældist flokkurinn með tæplega 25 prósenta fylgi. Í kosningunum var Besti flokkurinn með 35 prósent atkvæða og fékk sex menn kjörna.
Píratar fá rétt tæp tíu prósent atkvæða sem þýðir einn mann inn. Fylgi VG virðist vera að fjara út en flokkurinn fær tæp sex prósent en heldur þó sínum manni. Framsóknarflokkurinn mælist með 4,5 prósent.
