Innlent

Myrt á 7 ára afmælisdegi sonarins

Á heimili fjölskyldu einnar á Lyngheiði í Kópavogi var allt kapp lagt á að 7 ára afmæli Rafns Öldusonar yrði sem eftirminnilegast í lok fyrstu vinnuviku septembermánaðar árið 1988. Alda Rafnsdóttir, móðir Rafns litla, sá um undirbúninginn en henni auðnaðist ekki að upplifa afmælisveisluna. Sársaukinn sem fylgt hefur morðmáli Öldu hefur verið þyngri en tárum taki fyrir fjölskylduna.

Saga Öldu Rafnsdóttur hefur ekki verið sögð í fjölmiðlum áður. Fyrir því er góð ástæða. Sársaukinn sem fylgt hefur morðmáli hennar og eftirmál hafa verið þyngri en tárum taki fyrir fjölskyldu hennar og vini.

„Hún var jákvæð og hún var ofsalega orkurík. Hún kom alltaf með gleði, hún var ein af þessum manneskjum sem lýstu upp heimilið.“ Þetta segir móðir Öldu, Karen Gestsdóttir, sem ræðir átakanlega sögu fjölskyldunnar í þættinum Íslenskir ástríðuglæpir á Stöð 2 á sunnudagskvöld.

Örlagarík ákvörðun

Alda tók örlagaríka ákvörðun að kvöldi föstudagsins 2. september 1988. Þá hélt hún ásamt kunningjakonu sinni á dansleik. Það reyndist síðasti dansleikur Öldu Rafnsdóttur. Fyrir utan skemmtistaðinn hittu þær vinkonurnar mann og var ákveðið að deila leigubíl að lokinni skemmtun kvöldsins. Skömmu síðar var Alda látin. Myrt á sjöunda afmælisdegi sonar síns sem var staddur í sama herbergi og atburðurinn óhugnanlegi átti sér stað í.



Tóku drenginn að sér

Móðir Öldu og faðir tóku drenginn í sína umsjá í kjölfar atburðarins. „Ég vissi ekki meðan ég gekk í gegnum þetta að ég væri svona brotin. Þegar Alda deyr þá lifi ég fyrir drenginn. Hann var bara markmiðið. Líf okkar byggðist upp á því að gefa honum eitthvað til að geta lifað með.“

14 ára fangelsi

Banamaður Öldu hlaut 14 ára fangelsisdóm fyrir tilræðið. Hver harmleikurinn á fætur öðrum hefur dunið yfir fjölskylduna á undanförnum árum og Karen segir undanfarin ár hafa verið erfið. Fleiri dauðsföll riðu yfir í kjölfar andláts Öldu.

„Maður hefur tvo möguleika. Það er að lifa með reiðinni og geyma hana, eða verða vitlaus. Ég valdi fyrri kostinn,“ segir Karen. Rætt verður við hana, lögreglumenn sem önnuðust rannsókn málsins og föður Öldu í Íslenskum ástríðuglæpum á Stöð 2 í kvöld klukkan 20:50.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×