Innlent

Útskriftarnemar í Bangkok: Tómar götur og gaddavírsgirðing

Bjarki Ármannsson skrifar
Frá vinstri: Þórarinn Már Kristjánsson, Elías Jónsson og Ármann Óskarsson við upphaf ferðarinnar.
Frá vinstri: Þórarinn Már Kristjánsson, Elías Jónsson og Ármann Óskarsson við upphaf ferðarinnar. Mynd/Elías Jónsson
Nú er tæp vika liðin frá því að tælenski hershöfðinginn Prayuth Chan-ocha tilkynnti umheiminum að her landsins hefði hrifsað til sín völdin. Síðan hefur útgöngubann verið sett á í Tælandi og leiðtogar vestrænna ríkja lýst yfir áhyggjum sínum yfir stöðu mála.

Fjöldi Íslendinga er staddur í landinu, meðal annars hópur í útskriftarferð frá verkfræðideild Háskóla Íslands sem er í Bangkok. Ármann Óskarsson, einn útskriftarnema, segir valdatökuna óneitanlega hafa sett svip sinn á ferðina.

„Það er mjög merkilegt að horfa út á göturnar hérna frá hótelinu, “ segir Ármann. „Þær eru nánast alveg tómar. Þær væru alveg stappfullar ef ekki væri fyrir þetta útgöngubann.“

Útskriftarhópurinn hans Ármanns kom til Tælands á föstudaginn fyrir tæpum tveimur vikum síðan. Þau gistu í Bangkok eina nótt en héldu svo í ferð út úr höfuðborginni.

„Við fórum í Safari-ferð þar sem við gistum eina nótt í trjákofum og svo aðra á flekum á vatni í Khao San-þjóðgarðinum.“

Síðan fórum við í ferðamannabæinn Krabi sunnarlega á landinu og á þriðjudaginn fyrir rúmri viku tókum við eftir því að sjónvarpsstöðvarnar voru allar undirlagðar í skjámynd.“

Stillimyndin sem blasir við á öllum sjónvarpsstöðvum í Tælandi.Mynd/Elías Jónsson
Skjámyndinn sést hér með fréttinni, en á henni stendur á ensku „National Peace and Order Maintaining Council“ og fyrir ofan texti með tælensku letri. Þetta var að kvöldi dagsins sem herinn tók völd í landinu.

„Við urðum ekkert var við neitt þennan þriðjudag og miðvikudaginn þar á eftir, en á fimmtudaginn vorum við á kvöldgöngu í Krabi, sem venjulega er iðandi af lífi alla nóttina, og klukkan tíu fór fólk að draga fyrir sölubásana sína og búðir að loka. Meira að segja „ladyboy-arnir“ hurfu af götunum,“ segir Ármann.

„Þá hafði bara verið sett útgöngubann um allt land milli tíu og timm um nótt og Tælendingarnir virtust taka þessu mjög alvarlega. 7-11 búðirnar lokuðu og þá er mikið sagt.“

Hann segir útskriftarnemana íslensku ekki hafa kippt sér upp við ástandið.

„Við héldum því bara partý á sundlaugarbakkanum við litla hrifningu hinna gestanna.“

Daginn eftir segir Ármann þrjá úr hópnum hafa farið í leiðangur um bæinn og séð nokkra hermenn.

„Það er eitthvað sem kallast Princess Residence þarna nálægt sem er venjulega opið fyrir gesti en þeir voru með „roadblock“ og sögðu okkur að snúa við. Við þorðum ekki öðru.“

Á laugardeginum hélt hópurinn svo á eyjuna Phi Phi, sem þekkt er fyrst og fremst fyrir skemmtanalíf sitt.

„Þar var alveg bilað partý á ströndinni en menn hættu bara klukkan tíu um kvöld þó það væri engin lögregla þarna af viti. Ég held að það hafi verið samtals sex lögreglumenn á eyjunni en menn þorðu samt ekki að halda partýinu áfram. Daginn eftir voru menn hættir að taka þessu alvarlega þó að innfæddir hafi farið heim.“

Hópurinn er nú staddur í Bangkok á ný og heldur heim á leið á fimmtudaginn. Ármann segir andrúmsloftið í höfuðborginni ólíkt því sem hann upplifði í Krabi og Phi Phi. Lögregla keyri um og loki búðum sem eru með opið eftir klukkan tíu. Þá sé mikið um veggjakrot í borginni, með slagorðum á borð við „No coup.“

„Hér eru menn mun stressaðri. Það eru verðir við bílastæðið sem heilsa með hermennakveðju, ég er samt ekki viss um að þeir séu hermenn. Svo er aðaltorgið lokað hérna í borginni, gaddavírsgirðing í stóran radíus í kring.“

Ármann segir hópinn þó ekki hafa miklar áhyggjur af öryggi sínu.

„Eina böggið er að það er allt lokað á kvöldin og maður má ekki fara út. Sem er reyndar alveg galli í útskriftarferð.“


Tengdar fréttir

Útgöngubann í Tælandi

Leiðtogar Sameinuðu þjóðanna, Evrópusambandsins og vestrænna ríkja hafa lýst yfir áhyggjum sínum á stöðunni í Taílandi en nú er komið á útgöngubann í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×