Tvöfaldar vaktir alþekktur veruleiki Stefán Ó. Jónsson skrifar 23. maí 2014 12:59 Ólafur G. Skúlason er formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Í ákærunni á hendur hjúkrunarfræðingnum sem gefið er að sök að draga sjúkling til dauða vegna gáleysis í starfi er sérstaklega tekið fram að hún hafi verið að vinna tvöfalda vakt á Landspítalanum þegar mistökin áttu sér stað. Afglöpin hjúkrunarfræðingsins gerðust á kvöldvakt sem hún vann í beinu framhaldi af dagvakt. Þessar vaktir eru alla jafna samanlagt 16 klukkustunda langar, yfirleitt frá klukkan átta á morgnanna til miðnættis, og hafa verið leiddar líkur að því að gáleysi hjúkrunarfræðingsins megi rekja til álagsins sem slíkum vöktum kann að fylgja. Ólafur G. Skúlason, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, segir í samtali við Vísi að slíkar aukavaktir séu alþekktur veruleiki innan stéttarinnar. „Þær eru algengar, við skulum bara orða það þannig,“ segir Ólafur. Félag íslenskra hjúkrunafræðinga sendi frá sér ályktun í kjölfar ákærunnar þar sem stjórnvöld eru hvött til að vinna bug á þessu hvimleiða starfsumhverfi sem stéttin hrærist í svo hún megi veita sjúklingum örugga hjúkrun. „Slíkt starfsumhverfi felur í sér nægjanlegt fjármagn, góða mönnun hjúkrunarfræðinga, nægjanlegan hvíldartíma og minna vinnuálag en til staðar er í dag.“
Mest lesið Everest fullt af rusli sem mun taka fleiri ár að hreinsa Erlent Attal segir af sér og Melénchon vill stjórnarmyndunarumboð Erlent Egill syrgir brottvísun vina sinna Innlent Mikil uppbygging framundan á Borg í Grímsnesi Innlent Útkall vegna skútu sem strandaði í Eyjafirði Innlent Viðsnúningur í frönsku þingkosningunum Erlent Reikna með að hefja formlegar sameiningarviðræður í haust Innlent Segir Akranes verða svefnbæ Innlent „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Útilokar ekki kosningu en Jón vill kjósa áður en það verður of seint Innlent Fleiri fréttir Mikil uppbygging framundan á Borg í Grímsnesi Útkall vegna skútu sem strandaði í Eyjafirði Viðsnúningur í frönsku þingkosningunum Egill syrgir brottvísun vina sinna Þyrla kölluð út vegna bifhjólaslyss á Vestfjörðum Segir Akranes verða svefnbæ Útilokar ekki kosningu en Jón vill kjósa áður en það verður of seint Íbúum í Árborg fjölgar um 600 til 700 á ári Reikna með að hefja formlegar sameiningarviðræður í haust Annríkt hjá lögreglu á stærsta degi Írskra daga Lögregluaðgerðir í Rangárþingi og sameining Skorradals og Borgarbyggðar Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Miklar framkvæmdir á Kirkjubæjarklaustri fyrir unga fólkið Slökkviliðið kallað út vegna reyks á skemmtistað Sjö gistu fangageymslur á höfuðborgarsvæðinu í nótt Eldur kviknaði inni á veitingastað í Ármúla N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Tveir í haldi lögreglu vegna meintrar skotárásar Yfirgáfu skarkalann í borginni og gerðust ferðaþjónustubændur Uppgjöf eftir áratugabaráttu við kerfið og meint skotárás í Þykkvabæ Fannst fyrir botni Birnudals Segir menn hafa skotið á gröfumann við vinnu Fluttu sex á slysadeild eftir harðan árekstur í Breiðholti Umdeild starfsemi hafi ekki áhrif á neysluvatn íbúa Mikil stemning á Goslokahátíð í Vestmannaeyjum Göngumaðurinn fannst látinn „Ótrúlegt hvað er hægt ef maður hefur hugmyndaflugið“ 30 tilvik skráð: „Alltaf einhverjir sem fara út af sporinu“ Sjá meira