Íslenski boltinn

Átján mörk í fimmtu umferðinni - sjáðu þau öll

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Fimmta umferð Pepsi-deildar karla í fótbolta fór öll fram í gær og hún var síðan gerð upp í Pepsi-mörkunum eftir að síðasta leiknum lauk.

Þór og Víkingur voru einu sigurvegarar umferðarinnar en fjórir af sex leikjum hennar enduðu með 1-1 jafntefli þar af náðu bæði Valur og Breiðablik að tryggja sér stig á síðustu stundu.

Fylkismenn skoruðu tvö mörk manni færri en fengu líka á sig fjögur og urðu því að sætta sig við tap fyrir á móti Þór fyrir norðan. FH-ingar náðu að skora jöfnunarmark í Keflavík tíu á móti ellefu en það jafnaðist í liðunum áður en leiknum lauk.

Að venju voru mörk umferðarinnar tekin saman í markaregns-myndbandinu í lok þáttarins og þessi átján marka syrpa er núna aðgengileg hér inn á Vísi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×