Lífið

Brotist inn til Söndru Bullock

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Brotist var inn á heimili leikkonunnar Söndru Bullock í Los Angeles um klukkan hálf sjö í gærmorgun.

Samkvæmt heimildum vefsíðunnar TMZ var Sandra heima þegar innbrotið átti sér stað en slasaðist ekki.

Búið er að handtaka innbrotsþjófinn en hann hefur ekki verið kærður.

Kvöldið áður en innbrotið átti sér stað hlaut Sandra verðlaunin Decade of Hotness, eða áratugur af kynþokka, á Guy's Choice-verðlaunahátíðinni vestan hafs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×