Menning

„Sviðið varð bara að sundlaug“

Baldvin Þormóðsson skrifar
Það er mikið stuð í Sviss.
Það er mikið stuð í Sviss. mynd/aðsend
Við erum búin að umbreyta klaustrinu í risastórt helvítis-tívolí í stíl David Lynch, segir Þorleifur Arnarsson, leikstjóri en hann frumsýnir Shakespeare verkið Ys og Þys út úr engu í ævafornu klaustri í Sviss í kvöld.

Þetta er semsagt hluti af leikhúshátíð sem haldin er á þriggja ára fresti, þá er valinn leikstjóri og honum gefið ákveðið budget til þess að setja upp flotta sýningu.

Sýningin flakkar á milli þess að vera tragedía og kómedía.mynd/aðsend
Snýr öllu á hvolf

Þorleifur er ekki óvanur leikhússtarfi í Sviss en hann hefur sett upp helling af sýningum með nokkrum af fremstu stjörnum þýska leikhúsheimsins og þar af þrjár í leikhúsi sem er í eigu listræna stjórnanda hátíðarinnar.

„Sumarleikhús hefur þetta orð á sér að vera létt og skemmtilegt, mikið sungið og fólk fær að vera með en ég ákvað að nota öll þessi element og snúa þeim á hvolf,“ segir leikstjórinn um sýninguna. „Stundum er þetta bara eins og rokktónleikar, síðan ertu allt í einu lentur í kómedíu og síðan alltíeinu tragedíu.“

Sýningin er sett upp í gömlu klaustri.mynd/aðsend
Bjuggu til plan B

Leikhópurinn hefur verið að æfa í 30 stiga hita í Sviss en síðan hálftíma fyrir svonefnda general prufuna í gær þá hófst hellidemba. „Sviðið varð bara að sundlaug,“ segir Þorleifur og hlær. 

„Fólk hljóp um hálfnakið að reyna að bjarga leikmyndinni en við tókum á það ráð að við fengum Dómkirkjuna í nágrenninu lánað ef það skildi rigna aftur og þá færum við bara áhorfendurna þangað.“

Þorleifur hefur unnið með mörgum af fremstu leikurum í þýsku leikhúsi.mynd/aðsend
    






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.