Lífið

Fær sér óvenjulegt húðflúr

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Fyrirsætan Cara Delevingne
Fyrirsætan Cara Delevingne Vísir/Getty
Ofurfyrirsætan Cara Delevingne bætti nýju húðflúri í safnið sitt í vikunni. Flúrið sem hún valdi sér er mjög óvenjulegt, orðið "Bacon" á hægri ilina.

Birti hún stolt mynd af þessu á instagram síðu sinni, enda mikill aðdáandi beikons. 

Fyrir skartar fyrirsætan meðal annars ljónshöfði á vísifingri hægri handar, setningunni "Made in England" á vinstri ilinni og orðinu "Silence" innan á hægri úlnlið.

Fyrr á þessu ári létu hún og fyrirsætan Jourdan Dunn flúra "DD" á mjöðmina til marks um vináttu þeirra. 












Fleiri fréttir

Sjá meira


×