Lífið

Hann elskaði mig ekki eins og ég elskaði hann

Sam Smith
Sam Smith V´sir/Getty
"Það er ekki auðvelt að segja frá þessu, en hann elskaði mig ekki eins og ég elskaði hann. Hann var ekki samkynhneigður og það gerðist aldrei neitt á milli okkar," segir söngvarinn Sam Smith um manninn sem varð honum innblástur að plötunni In the lonely hour.



 Smith, sem kom út úr skápnum opinberlega fyrr á árinu, segist hafa samið plötuna í mikilli ástarsorg. Þessi mikla ástarsorg hefur þó snúist í andhverfu sína því platan hefur notið gríðarlegra vinsælda síðan hún kom út í maí á þessu ári og náði toppsætinu í Bretlandi.

Hann hlaut Critics choice awards á Brit verðlaunahátíðinni í febrúar og var tilnefndur á VMA verðlaunahátíðinni í ágúst fyrir besta myndband og besti nýliðinn. 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×