Lífið

"Fullkominn árangur í baráttunni við hrukkur"

Ellý Ármanns skrifar
Berglind Þóra.
Berglind Þóra.
Berglind Þóra Hallgeirsdóttir, 35 ára, snyrtifræðingur, opnaði snyrtibudduna fyrir okkur.

„Nýlega uppgötvaði ég snyrtivörumerkið Olay. Ég hef lengi vel keypt mér dýrustu kremin þannig að ég var mjög ánægð þegar ég uppgvötaði þessar vörur. Ég mæli hiklaust með henni fyrir þær sem vilja hágæða krem á ótrúlega góðu verði," segir Berglind áður en hún opnar budduna sína.

Olay Regenerist 3 Point Treatment 24 stunda dagkrem nota ég bæði kvölds og morgna. Þetta er æðislegt dagkrem sem gefur mér góða næringu og raka allan daginn, ég er ekki að fá þessa leiðinlegu þurrkubletti og ekki er það verra að kremið er stútfullt af virkum efnum sem vinna gegn hrukkum."

Olay Regenerist 3 point Super serumið er leynivopnið mitt og ég gæti ekki lifað án þess. Þetta er silkimjúkt serum sem inniheldur undraefnið MATRIXYL sem tvöfaldar kollagenframleiðslu húðarinnar sem er náttúrulega fyllingarefnið okkar. Þannig dregur serumið úr sjáanlegum hrukkum og hrukkumyndun. Ég ber serumið bæði á andlit, háls og bringu áður en ég set 3 point Treatment dagkremið."

„Alltof margar konur gleyma hálsi og bringu, það er ekki alveg málið að vera með slétt andlit og hrukkóttan háls. Þessi tvö krem vinna einstaklega vel saman og gefa manni fullkominn árangur í baráttunni við hrukkur," segir hún.

Olay Regenerist hreinsiburstinn er það nýjasta í snyrtibuddunni minni. Burstinn hreinsar húðina margfalt betur en andlitshreinsir og gefur húðinni fullkomna hreinsun. Upplifunin er eins og að fara í andlitsbað á hverju kvöldi. Hann þrífur upp dauðarhúðfrumur og óhreinindi og örvar blóðflæði húðarinnar. Með þessum bursta undirbý ég húðina svo hún taki betur við þeim virku kremum sem ég nota."

„Mér finnst húðin mín hafa gjörbreyst eftir að ég byrjaði að nota hann, hún er sléttari, mýkri og meiri ljómi yfir henni."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×