Hólmbert þarf að bíða eftir tækifærinu hjá Bröndby Tómas Þór Þórðarson skrifar 12. september 2014 10:30 Hólmbert fagnar marki með U21 árs landsliðinu gegn Armeníu. vísir/anton
Danska úrvalsdeildarliðið Bröndby styrkti framherjasveit sína fyrir átökin í vetur á lokadögum félagaskiptagluggans og fékk meðal annars til sín Hólmbert Aron Friðjónsson á láni frá Celtic í Skotlandi. Tveir öflugir framherjar; KennethZohore og SimonMakienok, yfirgáfu Bröndby eftir síðasta tímabil, en Zohore var á láni frá Fiorentina og Makienok var keyptur til Palermo. Thomas Frank, þjálfari Bröndby, líkir hinum hávaxna Hólmberti við þá. „Hólmbert er eins og ef þú myndir setja þá tvo saman,“ segir Frank við danska knattspyrnuvefinn Bold.dk. Þjálfarinn ætlar að gefa Hólmberti tíma til að aðlagast lífinu í Danmörku og verður Svíinn Johan Elmander, sem áður spilaði með Fulham í ensku úrvalsdeildinni, aðalframherji liðsins næstu vikurnar. „Hólmbert stóð sig vel á æfingu á þriðjudaginn þar sem hann kláraði færin sín vel. Ef hann spilar eftir getu mun hann komast í byrjunarliðið, en það mun taka smá tíma. Við sjáum samt margt spennandi í honum.“ „Johan hefur byrjað vel og vonandi heldur hann áfram að skora á sunnudaginn. Hann verður bara sterkari og sterkari með hverjum deginum. Við höfum ekki enn séð það besta frá Johan,“ segir Thomas Frank.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúla 1 „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Körfubolti „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Enski boltinn Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang Fótbolti Fleiri fréttir Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Gerrard orðaður við endurkomu til Rangers Liðsfélagi Alberts laus af spítala „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Sjá meira