Innlent

Háskólinn á Akureyri í ósmekklegu túlkunarstríði

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Ólína Þorvarðardóttir er ekki sátt með málsmeðferð háskólaráðs Háskólans á Akureyri.
Ólína Þorvarðardóttir er ekki sátt með málsmeðferð háskólaráðs Háskólans á Akureyri. MYND/VÍSIR
Ólína Þorvarðardóttir segir Háskólann á Akureyri hafa hafið „ósmekklegt túlkunarstríð“ um niðurstöðu Umboðsmanns Alþingis.

Rektor Háskólans á Akureyri hvatti fyrr í dag Umboðsmann Alþingis til þess að birta þann hluta bréfs síns til Ólínu Þorvarðardóttur er varði stjórnsýslu Háskólans á Akureyri. Skólinn gæti ekki lengur setið undir ásökunum og þungum ávirðingum vegna ráðningar í stöðu forseta hug- og félagsvísindasviðs háskólans. Sigrún Stefánsdóttir, fyrrum dagskrárstjóri á RÚV, var ráðin í starfið.

„Í netumræðum og í hinum ýmsu fjölmiðlum komu fram þungar ávirðingar varðandi ráðningarferlið. Þá máttu æðstu stjórnendur háskólans sitja undir ásökunum um, að stjórnsýslu við skólann væri ábótavant,“ sagði í tilkynningu sem Eyjólfur Guðmundsson, rektor HA, sendi fjölmiðlum í dag fyrir hönd Háskólans á Akureyri. Hann sagði niðurstöðu Umboðsmanns skýra.

„Engar athugasemdir eru gerðar við þau vinnubrögð og þá ákvörðun þáverandi rektors, Stefáns B. Sigurðssonar, að ráða Sigrúnu Stefánsdóttur í umrædda stöðu og lýkur Umboðsmaður málinu með ítarlegu bréfi sem stílað er á Ólínu Þorvarðardóttur. Háskólinn á Akureyri fékk sent afrit af því bréfi.“

Ofmælt að stjórnsýslan sé góð

„Af yfirlýsingu rektors mætti til dæmis ætla að umboðsmaður hafi í úrskurði sínum lokið upp lofsorði á Háskólann á Akureyri fyrir „góða stjórnsýsluhætti" sem er af og frá“ að mati Ólínu.

Hún bætir við að „þó að umboðsmaður telji sig „ekki hafa forsendur" til að átelja ákveðin atriði og skorti upplýsingar sem séu hluti af „sönnunarbyrði" sem eigi frekar heima hjá dómstólum, tel ég mjög ofmælt í yfirlýsingu rektors að stjórnsýsla þessa máls sé góð, þó að hún standist lög,“ segir Ólína.

Niðurstaða Ólínu er sú að Háskólinn á Akureyri hafi sýnt slaka stjórnsýslu í umræddu máli. „Skólinn kemst upp með það því svo virðist sem lög hafi ekki verið brotin," segir dr. Ólína Þorvarðardóttir. Hún segist einnig ekki hafa óskað leyndar um títtnefndan úrskurð.




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×