Viðskipti innlent

Ostamáli Haga vísað frá dómi

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Hagar höfuðu mál eftir að hafa verið synjað um frjálsan innflutning á lífrænum kjúklingum og tilteknum ostum.
Hagar höfuðu mál eftir að hafa verið synjað um frjálsan innflutning á lífrænum kjúklingum og tilteknum ostum. Vísir / Valgarður
Héraðsdómur vísaði í dag frá máli Haga gegn íslenska ríkinu vegna vegna innflutnings á lífrænum kjúklingum og tilteknum ostum. Fyrirtækið höfðaði mál vegna synjunar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins á umsókn um innflutning á þessum vörum. Hagar ætla að áfrýja til Hæstaréttar.

Sóttu um í vöruskorti

Fyrirtækið óskaði eftir að settur yrði opinn og gjaldfrjáls tollkvóti fyrir innflutning á lífrænum kjúklingi og ostum á þeim grundvelli að viðvarandi skortur væri á þeim innanlands. Því var hafnað og kærðu Hagar ákvörðunina til dómstóla þar sem fyrirtækið taldi að ekki hefðu verið virtar lögbundnar málsmeðferðarreglur við ákvarðanatökuna.

Dómurinn vísaði málinu hinsvegar frá á þeim grundvelli að Hagar ættu ekki beina og sérstaka hagsmuni af málsókninni. Rökin fyrir því voru sú að tollkvótar væru settir með reglugerðum og því væri ekki um synjun á einstaklingsbundnum réttindum til handa Högum að ræða þegar að beiðni þeirra var hafnað. Þetta staðfestir lögmaður Haga, Páll Rúnar Kristjánsson.

Skrýtin niðurstaða

Páll Rúnar furðar sig á þessari niðurstöðu og segir það vera stjórnarskrárvarinn rétt að bera ákvarðanir stjórnvalda undir dómstóla. Hann segir að lögin gera ráð fyrir sérstöku umsóknarferli, mati sérstakrar nefndar og síðan ákvörðunar ráðherra. Bæði ákvörðunar nefndarinnar og ráðherra sé stjórnvaldsákvörðun í merkingu stjórnsýslulaga.

„Það á ekki að breyta neinu að framkvæmd stjórnvaldsákvörðunarinnar endi með setningu reglugerðar,“ segir hann. „Það er bara kerfisbundin útfærsla á hinni eiginlegu ákvörðun sem tekin er að undangengnu lögbundu ferli sem hefst með umsókn hagsmunaaðila og endar með ákvörðun ráðherra.“

Verður að þola skoðun

 „Málið fer nú fyrir Hæstarétt og því langt frá því að vera búið,“ segir Páll Rúnar um framhald málsins. „Þessi mál, og ákvarðanir ráðuneytisins, varða mikilsverða hagsmuni neytenda og almennings og verða að þola skoðun.“

Hann furðar sig á því að ríkið hafi krafist áfrýjunar. „Það kom mér hins vegar á óvart að ríkið krefjist frávísunar í þessu máli og reyni þar með að koma sér undan því að takast efnislega á um gerðir sínar fyrir dómi og standa skil á þeim.“


Tengdar fréttir

Hagar stefna ríkinu vegna tolla

Krefjast ógildingar á ákvörðun landbúnaðarráðherra um að hafna beiðni um úthlutun opins tollkvóta fyrir innflutning á ostum og lífrænum kjúklingi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×