Lífið

David Letterman segir Ísland eiga flesta alkóhólista

Leikarinn JohnnyGalecki var staddur hér á landi í maí síðastliðnum, en hann fer með eitt af aðalhlutverkunum í þáttunum vinsælu Big Bang Theory.

Leikarinn góðkunni var gestur spjallþáttastjórnandans DavidLetterman, á dögunum þar sem þeir félagar ræddu heimsókn Galeckis til landsins. Þeir segja flesta landsmenn trúa á álfa og að Íslendingar eigi þann vafasama heiður að hér séu flestir alkóhólistar miðað við höfðatölu.

Galecki er 39 ára gamall en þættirnir hafa notið gríðarlegra vinsælda síðastliðin sjö ár.

Galecki fer með hlutverk Leonard Hofstadter í þáttunum vinsælu sem sýndir eru á Stöð 2.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×