Innlent

VG skilaði ekki ársreikningi

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Katrín Jakobsdóttir er formaður Vinstri grænna.
Katrín Jakobsdóttir er formaður Vinstri grænna. Vísir / Stefán
Vinstri grænir skiluðu ekki ársreikningi til Ríkisendurskoðunar fyrir 1. október eins og lög kveða á um. Flokkurinn tilkynnti stofnuninni að ekki væri von á ársreikningi fyrr en eftir helgi.

Framsóknarflokkurinn skilaði fyrir tímamörk en enn er unnið að yfirferð reikningsins hjá Ríkisendurskoðun svo hægt sé að birta hann opinberlega. Von er á því að hann verði birtur á mánudag eða þriðjudag.

Búið er að birta upplýsingar frá Sjálfstæðisflokki, Samfylkingu og Bjartri framtíð. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×