Íslenski boltinn

Heimir heldur að sér spilunum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Stefán
Heimir Guðjónsson hefur tekið þátt í ótrúlegum uppgangi FH í íslenskri knattspyrnu en hann fær tækifæri á morgun til að vinna sinn sjöunda Íslandsmeistaratitil með félaginu.

Titlana hefur hann unnið sem leikmaður, aðstoðarþjálfari og nú þjálfari. Þar að auki þekkir hann tilfinninguna að fara í úrslitaleik sem þennan gegn Stjörnunni á morgun. Heimir var leikmaður KR í frægum úrslitaleik gegn ÍA í lokaumferð Íslandsmótsins árið 1996.

Heimir ræddi við Vísi fyrir æfingu FH á Kaplakrikavelli í gær og valdi orð sín vandlega í viðtalinu. Hann viðurkenndi þó að hann hafi verið byrjaður að hugsa um leikinn gegn Stjörnunni áður en þessi vika rann upp.

„Mikilvægast fyrir okkur er að koma út í leikinn og spila okkar leik. Við verðum að halda okkur við það sem við erum góðir í - og sleppa því sem við erum ekki góðir í,“ sagði Heimir. „Við byrjum á því og svo þegar líður á leikinn þá þurfum við að aðlagast honum.“

Hann hrósaði báðum liðum og sagði þau vera bæði með öfluga leikmenn, gott skipulag og mikið sjálfstraust. „Stjarnan hefur verið afar öflug það sem af er sumri. Ég held að þetta verði úrslitaleikur sem fólk vilji sjá.“

Heimir á von á markaleik. „Bæði lið eru sóknarþenkjandi og með öfluga sóknarmenn sem eru góðir í því að brjóta niður varnir. Það verður boðið upp á góðan sóknarleik í þessum leik.“

Vísir/Stefán
Eitt allra hættulegasta vopn Stjörnunnar eru skyndisóknir liðsins en Heimir er með ákveðnar lausnir í huga gegn þeim. „Ég get þó því miður ekki gefið upp hvernig við ætlum að stöðva þær. En skyndisóknir Stjörnunnar eru mjög öflugar og þar eru þeir með fjóra lykilmenn.“

Heimir byrjaði að leggja upp leikinn fyrir leikmenn á æfingunni á fimmtudag en hann segir að það sé ekki of seint. „Ég tel það hárréttan tíma til að byrja að undirbúa liðið fyrir leikinn. Því það getur unnið gegn leikmönnum ef maður ætlar að eyða of löngum tíma í undirbúninginn og vera með of mikið af upplýsingum.“

Hann segir mikilvægast að hver og einn fái að sinna sínum undirbúningi fyrir leikinni eins og viðkomandi telji best.

„Leikmenn eru eins ólíkir og þeir eru margir en mestu máli skiptir er að láta utanaðkomandi áreiti ekki hafa áhrif á mann,“ segir Heimir.


Tengdar fréttir

Heimir í jakkafötum: Ég tapaði veðmáli

Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, vakti mikla athygli á hliðarlínunni í Kópavogi í kvöld. Heimir var mættur í huggulegum jakkafötum en hann hefur ekki sést fara úr FH-gallanum síðan hann tók við stjórnartaumunum þar.

Í eigin Heimi

Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, varð um síðustu helgi fyrstur þjálfara til að vinna hundrað leiki í efstu deild með einu félagi. FH-ingar hafa sigrað í þrettán eða fleiri leikjum á fyrstu sjö tímabilum Heimis síðan hann tók við í Krikanum.

Ólafur hættur hjá FH - Heimir tekur við

Ólafur Jóhannesson hefur látið af störfum sem þjálfari bikarmeistara FH og við starfi hans tekur fyrrverandi aðstoðarmaður hans Heimir Guðjónsson. Þetta staðfestir félagið fréttatiltilkynningu í dag.

Hittast á toppnum eftir ólíkan áratug

FH og Stjarnan mætast í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í Kaplakrika á laugardaginn en gengi liðanna síðasta áratuginn hefur verið eins ólíkt og hugsast getur.

Heimir verður áfram þjálfari FH-liðsins

FH-ingar hafa staðfest það á heimasíðu sinni, fhingar.net, að Heimir Guðjónsson verður áfram þjálfari meistaraflokks karla hjá félaginu. Þetta verður fjórða sumar Heimis með liðinu en hann tók við liðinu af núverandi landsliðsþjálfara Ólafi Jóhannessyni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×