Frænka Reevu frétti af dauða hennar í útvarpinu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 15. október 2014 21:48 Foreldar Reevu Steenkamp í dómsal í dag. Vísir/Getty
Frænka Reevu Steenkamp, Kim Martin, bar vitni í dag í sérstökum vitnaleiðslum þar sem deilt er um hver refsing Oscars Pistorius skal vera en hann var fundinn sekur um manndráp af gáleysi í síðasta mánuði. Hann skaut Reevu, unnustu sína, til bana á heimili þeirra í febrúar í fyrra. Martin brotnaði niður í vitnastúkunni þar sem hún sagði frá því að hún hefði frétt af því í útvarpinu að Pistorius hefði skotið kærustuna sína til bana. Hún sagðist í örvæntingu sinni hafa vonað að frænka sín væri ekki látin og sagði við eiginmann sinn: „Ég vona að hann sé að halda framhjá Reevu.“ Martin brást svo í óstöðvandi grát. Gera þurfti hlé á vitnaleiðslunum en þegar þær héldu áfram sagði Martin: „Nafnið kom hvergi fram í fréttum, það var bara sagt að þetta væri kærastan hans. Ég var að reyna að hringja í Reevu og hún svaraði ekki símanum. Ég öskraði á eiginmann minn.“ Hún hafi svo farið heim til móður sinnar og þá komist að því að Reeva væri látin. Martin sagði dauða Reevu hafa haft afar slæm áhrif á alla í fjölskyldunni, og þá sérstaklega foreldra Reevu sem glímt hafa við ýmis heilsufarsvandamál í kjölfarið. Aðspurð hvers vegna hún vildi bera vitni sagðist Martin gera það til þess að veita frænku sinni rödd. Vitnaleiðslum í málinu verður haldið áfram á morgun.
Mest lesið Menn hér á landi verið tengdir hryðjuverkasamtökum Innlent Fjölga rýmum á öryggisgeðdeild og ný stofnun í startholunum Innlent Höfðar mál gegn Íslandi vegna úrgangsmála Innlent Fluttur á slysadeild eftir líkamsárás Innlent Enn stefnt á uppbyggingu þótt talan hundrað sé ekki heilög Innlent Bilun í stofnneti Ljósleiðarans Innlent „Ekki kynnst alvöru málþófi ef þau telja þetta vera mikið málþóf“ Innlent Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Adolescence gott samfélagsinnlegg en ekki góð forvörn Innlent Hryssurnar lamdar, ýtt í þær með prikum og þær beittar afli Innlent Fleiri fréttir Fæddi barn ókunnugrar konu vegna mistaka Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Sjá meira