Lífið samstarf

Ný matreiðslubók að hætti Frozen

,,Það er því auðvelt að nota bókina til að setja saman skemmtilegan matseðil fyrir vikuna - nú eða allan mánuðinn,
,,Það er því auðvelt að nota bókina til að setja saman skemmtilegan matseðil fyrir vikuna - nú eða allan mánuðinn, MYND/STEFÁN
Ný Disney matreiðslubók er komin út en þar bjóða persónur teiknimyndarinnar vinsælu Frozen upp á holla og góða rétti sem fjölskyldumeðlimir á öllum aldri geta eldað saman. Að sögn Maríu Johnson, markaðsstjóra Eddu útgáfu, inniheldur bókin 63 íslenskar uppskriftir sem eru mjög fjölbreyttar og hafa þær allar hollustuna að leiðarljósi.

„Uppskriftirnar eru misflóknar og er hver fyrir sig merkt með erfiðleikastuðli frá 1 og upp í 5. Bókinni er skipt upp í sjö kafla, einn fyrir hvern dag vikunnar. Þannig höfum við kjötlausa mánudaga, létta þriðjudaga, græna miðvikudaga, fimmtudagsfiskrétti, fjölskylduföstudaga, skemmtilega laugardaga og svo að lokum sunnudagssteik í lok vikunnar. Það er því auðvelt að nota bókina til að setja saman skemmtilegan matseðil fyrir vikuna - nú eða allan mánuðinn.“

Bókin er skreytt fallegum ljósmyndum af réttunum auk þess sem nánari skýringarmyndir birtast við suma réttina. Persónum Frozen bregður fyrir á hverri opnu og tengjast þannig hverjum rétti fyrir sig.

„Nú geta fjölskyldumeðlimir til dæmis eldað saman ofurmorgunverð Önnu, kjúklingavefjur vinanna í Arendell, heimalöguðu kjötbollurnar hans Ólafs, lambalæri Elsu og jarðaberja rísottó drottningarinnar.“

Glæsilegar myndir eru í bókinni af hverri uppskrift.MYND/ÚR EINKASAFNI
Mikið er lagt upp úr hollum uppskriftum og kemur næringargildi hvers réttar fram. „Við fengum Steinar B. Aðalbjörnsson, næringarfræðing hjá Matís, til að aðstoða okkur við að yfirfara allar uppskriftir með tilliti til hollustu og skrifar hann líka skemmtilegan og fræðandi inngang í upphafi bókarinnar.“

Frozen matreiðslubókina er hægt að fá í öllum helstu bókaverslunum landsins, þar með talið ýmsum stórmörkuðum. Einnig er hægt að kaupa hana í vefverslun útgefanda á edda.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×