Platini vill sjá Meistaradeildarleiki í júní 2022 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. nóvember 2014 13:00 Michel Platini. Vísir/Getty
Michel Platini, forseti UEFA, er einn af þeim sem vildi að HM 2022 færi fram í Katar en hann er líka einn af þeim sem segir að keppnin verði að fara fram um vetur til að losna við sumarhitann í Katar. Michel Platini hefur nú komið fram með nýja hugmynd til að létta á leikjaálaginu í evrópsku deildunum sem myndi fylgja því að Heimsmeistarakeppnin færi fram um vetur eða á miðju tímabili í Evrópu. „Það verður aldrei hægt að halda HM í Katar í apríl, maí eða júní. Keppnin verður að fara fram um vetur," sagði Michel Platini í viðtali við BBC. Platini leggur því til að færa til Meistaradeildina þetta tímabil þannig að undanúrslitin og úrslitaleikirnir fari fram í júnímánuði í stað apríl og maí. Þrátt fyrir að fullyrða það í dag að það sé ekki hægt að spila á HM í sumarhitanum í Katar þá var Platini einn af þeim sem gaf Katar atkvæði sitt. „Ég hef alltaf vonast til þess að keppnin færi fram um vetur. Það kusu margir Katar, ekki bara ég, og þar hafði mikið að segja að arabísku þjóðirnar voru búnir að tapa sjö sinnum áður. Það var kominn tími til að Arabíuheimurinn fengi að halda HM," sagði Platini.
HM 2014 í Brasilíu Meistaradeild Evrópu Mest lesið Orri og félagar duttu út með hádramatískum hætti Fótbolti Segir Müller eiga skilið góða kveðjustund Fótbolti Uppgjörið: Njarðvík 84-75 Stjarnan | Njarðvík tekur foyrsuna í kaflaskiptum leik Körfubolti „Verður vonandi tilbúinn fyrir síðustu leiki tímabilsins“ Enski boltinn Sluppu með sigur og hafa haldið oftast hreinu Enski boltinn „Ekki tími ársins til að fara inn í einhverja skel“ Körfubolti „Þetta var alveg orðið smá stressandi“ Sport Þjálfari Sveindísar segir starfi sínu lausu Fótbolti Saka sneri aftur og skoraði í sigri Skyttnanna Enski boltinn „Verðum að nýta hvert einasta tækifæri sem við fáum“ Körfubolti Fleiri fréttir „Verður vonandi tilbúinn fyrir síðustu leiki tímabilsins“ Segir Müller eiga skilið góða kveðjustund Orri og félagar duttu út með hádramatískum hætti Saka sneri aftur og skoraði í sigri Skyttnanna Sluppu með sigur og hafa haldið oftast hreinu Þjálfari Sveindísar segir starfi sínu lausu „Búin að taka mig inn í fjölskylduna“ Úthúðar þjálfaranum: Fékk betri æfingar í flóttamannabúðunum Stúkan fær liðsstyrk í þremur kanónum Besta auglýsing Fram: Rúnar kann öll vafasömu trixin „Var meira fyrir að borða nutella úr krukkunni og spila tölvuleiki“ „Stærsta í þessu er ef Rúnar Már nær að spila meira“ Besta-spáin 2025: Vindur í Skagaseglin Sagði Fernandes að hann færi hvergi Lífvörðurinn bannaður: „Leyfið mér að hjálpa Messi“ Tárin streymdu hjá gömlu United-hetjunni „Ég veit bara að þetta er mjög vont“ 570 milljóna uppsafnað tap hjá Everton Tekjur Wrexham í hæstu hæðum Haaland væntanlega úr leik í deildinni Saka klár í slaginn á ný Fékk fjóra bakka af eggjum fyrir að vera maður leiksins Heimsóttu Hásteinsvöll: „Það eru ekkert allir sáttir við þetta“ Hvorki zombie-bit né tattú Vel vopnaðir tökumenn: „Djöfull er þetta góður klútur“ Ekki þess virði að taka áhættu með Glódísi „Maður er pínu hræddur fyrir þeirra hönd“ Glódís ekki með í landsleikjunum Besta-spáin 2025: Að finna sér nýjan samastað í tilverunni Vill hópfjármögnun fyrir Antony Sjá meira