Formúla 1

Hamilton fljótastur á æfingum í Texas

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Nær Hamilton ráspól eða nær Rosberg að stela þrumunni?
Nær Hamilton ráspól eða nær Rosberg að stela þrumunni? Vísir/Getty
Lewis Hamilton náði hraðasta tímanum á báðum föstudagsæfingunum. Bretinn var þremur tíundu á undan Nico Rosberg á fyrri æfingunni en aðeins þrem þúsundustu á þeirri seinni.

Jenson Button á McLaren varð þriðji á fyrri æfingunni og liðsfélagi hans Kevin Magnussen var fimmti, upp á milli þeirra kom Daniil Kvyat á Toro Rosso.

Max Verstappen fékk annað tækifæri hjá Toro Rosso þar sem hann mun aka á næsta tímabili og náði tíunda besta tímanum. Hann er greinilega ekki kominn í Formúlu 1 til að taka því rólega.

Fernando Alonso á Ferrari varð þriðji á seinni æfingunni en þó rúmlega sekúndu á eftir Mercedes mönnum, sem voru í algjörum sérflokki.

Daniel Ricciardo á Red Bull varð fjórði og Felipe Massa á Williams fimmti, tæpum tíundahluta úr sekúndu á undan Kimi Raikkonen sem varð sjötti á Ferrari.

Sebastian Vettel ákvað að spara nýja vél sína og ók aðeins einn hring. Hann hefur þegar sagt að líklega muni hann ekki taka þátt í tímatökunni.

Tímatakan fyrir bandaríksa kappaksturinn fer fram í dag, laugardag og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 3 klukkan 17:50.


Tengdar fréttir

FIA breytir tímatökunni í Texas

Færri bílar kölluðu á breytingar á fyrirkomulagi tímatökunnar í Texas annars hefðu tveir bílar dottið út í fyrstu lotu og því að litlu að keppa. Breytingarnar eru nauðsynlegar vegna fjarveru Caterham og Marussia.

Hulkenberg áfram hjá Force India

Nico Hulkenberg verður áfram ökumaður Force India liðsins í formúlu 1 á næsta tímabili. Staðfesting kom frá liðinu og ökumanninum í gær.

Caterham má missa af tveimur keppnum

Bernie Ecclestone er tilbúinn að leyfa Caterham liðinu að sleppa tveimur næstu keppnum til að einbeita sér að því að finna kaupendur.

Vettel sleppir væntanlega tímatökunni í Texas

Sebastian Vettel, fjórfaldur og ríkjandi heimsmeistari í Formúlu 1 segir að líklega muni hann sleppa tímatökunni. Tilgangurinn er að spara nýja vél sem sett verður í bílinn.

Stóru liðin ætla að skaffa litlu liðunum bíla

Bernie Ecclestone segir að samningur sem gerður hefur verið við stærri liðin í Formúlu 1 gæti leitt til þess að þau skaffi minni liðunum bíla. Þetta gæti komið til ef allt stefnir í mikla fækkun keppnisliða.

Bræður vilja bjarga Marussia

Bresk-indverskir bræður, Baljinder Sohi og Sonny Kaushal eru nú í samningaviðræðum við forsvarsmenn Marussia. Þeim virðist vera full alvara í að reyna að bjarga liðinu.

Marussia missir af næstu keppni

Bernie Ecclestone, einráður formúlu 1 hefur staðfest að Marussia muni, ásamt Caterham liðinu missa af bandaríska kappakstrinum næstu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×