Sigríður segir Gísla hafa beðið um upplýsingar um Omos Aðalsteinn Kjartansson skrifar 18. nóvember 2014 15:09 Sigríður segist ekki hafa vitað að Gísli hafi lekið gögnunum. Vísir
Gísli Freyr Valdórsson, fyrrverandi aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, óskaði eftir gögnum um málefni Tony Omos í símtölum sem hann átti við Sigríði Björk Guðjónsdóttur, fyrrverandi lögreglustjóra á Suðurnesjum daginn sem fréttir birtust upp úr minnisblaði sem hann lak. Þetta segir Sigríður í yfirlýsingu til fjölmiðla. Í samtölum sínum óskaði Gísli Freyr meðal annars eftir greinargerð frá embættinu um málefni Omos sem tengdust hælisumsókn hans og því að hann var eftirlýstur á þessum tíma. Talið var að hann væri í felum á Suðurnesjum, samkvæmt Sigríði. Hann hefur verið dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að leka gögnum um hælisleitandann. Gísli hefur í dag neitað því að hafa rætt við Sigríði um Tony Omos í þessum samtölum. „Ég man ekki hvað við ræddum, en við ræddum ekki Tony Omos,“ sagði Gísli Freyr í samtali við Kjarnann í morgun. Það stangast á við það sem fram kemur í yfirlýsingu Sigríðar.Sjá einnig: Atburðarásin í lekamálinu Samskiptin áttu sér stað morguninn sem birtar voru fréttir upp úr minnisblaði ráðuneytisins sem Gísli Freyr hefur verið dæmdur fyrir að leka. Aðstoðarmaðurinn fyrrverandi hefur einnig viðurkennt að hafa bætt við setningu aftast í minnisblaðið þar sem Omos er bendlaður við mansal. „Ekkert í samskiptum okkar Gísla Freys gaf til kynna að hann hafi lekið upplýsingum til fjölmiðla. Vitneskju mína um margrætt minnisblað hef ég úr fjölmiðlum og ég heyrði fyrst af játningu Gísla Freys í fjölmiðlum,“ segir hún í yfirlýsingunni.Yfirlýsing Sigríðar í heild sinni: Fyrst af öllu vil ég undirstrika að samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkissaksóknara, áttu umrædd samskipti mín við Gísla Frey Valdórsson sér stað eftir að minnisblaði um hælisleitandann Tony Omos var lekið til fjölmiðla. Það hefur legið ljóst fyrir og kemur skýrt fram í gögnum málsins samkvæmt upplýsingum frá ríkissaksóknara.Á þessum tíma voru, eins og algengt er, töluverð samskipti á milli ráðuneytisins og embættis lögreglustjórans á Suðurnesjum um ýmis mál, enda ber embættinu að veita ráðuneyti, sem æðra stjórnvaldi, þær upplýsingar er það óskar.Ég óskaði eftir því í dag við ríkissaksóknara að fá upplýsingar um símtölin sem DV vitnar til í umfjöllun sinni, með vísan til 1. mgr. 1. gr. fyrirmæla ríkissaksóknara nr. 1/2013 um aðgang að gögnum sakamála sem er lokið. Að morgni 20. nóvember 2013 átti ég, skv. gögnum frá ríkissaksóknara, tvö símtöl við Gísla Frey Valdórsson. Áður hafði ég hringt í hann til að svara skilaboðum en hann svaraði ekki. Gísli Freyr hringdi í mig kl. 09:41:55 og aftur kl. 09:56:53.Í samtölum okkar óskaði Gísli Freyr m.a. eftir greinargerð frá embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum um málefni Tony Omos er tengdust m.a. hælisumsókn hans og því að hann var eftirlýstur á þessum tíma og talinn vera í felum á Suðurnesjum. Umbeðin greinargerð var send Gísla Frey að kvöldi 20. nóvember kl. 21.21.Ekkert í samskiptum okkar Gísla Freys gaf til kynna að hann hafi lekið upplýsingum til fjölmiðla. Vitneskju mína um margrætt minnisblað hef ég úr fjölmiðlum og ég heyrði fyrst af játningu Gísla Freys í fjölmiðlum.Samkvæmt upplýsingum frá ríkissaksóknara í dag liggur fyrir „að þær trúnaðarupplýsingar sem Gísli Freyr Valdórsson var sakfelldur fyrir að láta af hendi skv. dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. S-651/2014 lét hann fjölmiðlum í té (blaðamanni á Fréttablaðinu) fyrir kl. 22.50 að kvöldi 19. nóvember 2013. Þetta kemur fram í rannsóknargögnum lögreglu sbr. einnig dómur Hæstaréttar í máli nr. 403/2014 en þar segir m.a.:„Af hálfu sóknaraðila kemur fram að í frétt sem birst hafi á forsíðu Fréttablaðsins 20. nóvember sl. sé fjallað um málefni A og að fréttin virðist vera byggð á umræddu minnisblaði. Samkvæmt upplýsingum lögreglu hafi blaðið farið frá ritstjórn í prentun um kl. 22:50 hinn 19. nóvember. Þá hafi birst frétt um sama efni á mbl.is að morgni 20. nóvember sl., kl. 10:55. Í fréttinni komi fram að mbl.is hafi undir höndum „óformlegt minnisblað innanríkisráðuneytisins“ og megi ljóst vera að fréttin sé byggð á minnisblaðinu.““
Lekamálið Tengdar fréttir Gísli Freyr bað samstarfsfólkið afsökunar Gísli Freyr Valdórsson, fyrrverandi aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, bað samstarfsfólk sitt í innanríkisráðuneytinu afsökunar á lekanum í morgun. 12. nóvember 2014 13:22 Dómur kveðinn upp í dag: Farið fram á þriggja ára fangelsi Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari sagði að játning Gísla Freys geti ekki talist til refsimildunar þar sem Gísli hafi ekki breytt afstöðu sinni fyrr en ljóst var að sönnunargögn nægðu til sakfellingar. 12. nóvember 2014 10:11 Gísli Freyr játaði lekann fyrir Hönnu Birnu Þetta segir ráðherra í tilkynningu til fjölmiðla. Gísla hefur verið vikið úr starfi. 11. nóvember 2014 18:02 Gísli Freyr er sáttur við dóminn Gísli Freyr Valdórsson ætlar að una dómi Héraðsdóms Reykjavíkur og áfrýjar ekki til Hæstaréttar. Segist hafa fests í lygavef og vítahring. 12. nóvember 2014 13:51 Svona var atburðarásin í lekamálinu Gagnvirk tímalína sem sýnir atburðarásina í lekamálinu sem varð til þess að Gísli Freyr Valdórsson var dæmdur í skilorðsbundið fangelsi. 12. nóvember 2014 12:04 Tilkynning Gísla Freys til fjölmiðla: „Get ekki lengur lifað í lygavef“ Gísli Freyr Valdórsson ítrekar að hann hafi ekki vitað að gjörðir hans væru ólöglegar. 11. nóvember 2014 22:15 Bjarni Ben: „Þetta er áfall fyrir okkur öll“ "Aðalatriði málsins eru þau að það er nú upplýst að sá sem treysti á sanngjarna málsmeðferð í dómsmálaráðuneytinu fékk ekki slíka meðferð,“ segir Bjarni. 12. nóvember 2014 17:01 Ráðherra gerði athugasemd við haldlagningu á tölvu Gísla Freys Saksóknari fann ný gögn á tölvu Gísla Freys um helgina. 12. nóvember 2014 11:21 Verjandi Gísla Freys fékk gögnin afhent klukkan þrjú í gær Er ekki sammála því að þessi nýju gögn taki af allan vafa um að Gísli hafi lekið trúnaðargögnunum. 12. nóvember 2014 08:57 „Góður maður hengdur“ Margir félagar Gísla Freys Valdórssonar vilja rísa upp honum til varnar og telja dóminn yfir honum þungan. 12. nóvember 2014 16:01 Sjálfstæðismenn lýsa yfir fullum stuðningi við Hönnu Birnu Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra sagði í samtali við fréttastofu að víðtækur stuðningur við ráðherrann væri innan þingflokksins. 12. nóvember 2014 15:34 Gísli Freyr: „Aldrei getað sætt mig við sýknudóm“ Gísli Freyr Valdórsson var dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi í dag. 12. nóvember 2014 20:55 „Ég ber ekki ábyrgð á lögbrotum“ Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, segist bera pólitíska ábyrgð á sínum undirmönnum en hún beri hins vegar ekki ábyrgð á lögbrotum. Hún segist jafnframt vera búin að segja af sér embætti. 12. nóvember 2014 17:43 „Stolt eiginkona Gísla sem gerðist maður að meiri að viðurkenna mistök sín“ Rakel Lúðvíksdóttir, eiginkona Gísla Freys Valdórssonar, lýsir yfir fullum stuðning við eiginmann sinn á samskiptamiðlinum Facebook. 12. nóvember 2014 10:03 Gögn sýna fram á rangar staðhæfingar Gísla Freys Gísli Freyr Valdórsson, fyrrverandi aðstoðarmaður innanríkisráðherra, hefur viðurkennt að hafa látið fjölmiðlum í té persónuupplýsingar um hælisleitandann Tony Omos. 12. nóvember 2014 07:00 Gísli Freyr í skilorðsbundið átta mánaða fangelsi Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 12. nóvember 2014 11:00 Gísli ræddi við Sigríði daginn sem gögnin voru birt Aðstoðarmaður innanríkisráðherra átti í talsverðum samskiptum við Sigríði Björk Guðjónsdóttur, þáverandi lögreglustjóra á Suðurnesjum, daginn sem fréttir birtust byggðar á leka úr ráðuneytinu. 18. nóvember 2014 09:57 Gísli Freyr sagði sig úr stjórn Fíladelfíu Gísli Freyr Valdórsson hefur sagt sig úr stjórn og rekstrarráði kirkjunnar í dag. Þetta staðfesti Aron Hinriksson, forstöðumaður safnaðarins, í samtali við Vísi. 12. nóvember 2014 22:06 Segist hafa játað samviskunnar vegna Gísli Freyr Valdórsson segir engan annan hafa vitað að hann stæði að baki leka úr innanríkisráðuneytinu. 11. nóvember 2014 20:15 Gísli Freyr grét í dómsal Eiginkona hans þerraði tárin á hvarmi hans að fyrirtöku lokinni. 12. nóvember 2014 11:43 Hugsanlegt að Gísli verði krafinn um endurgreiðslu Til skoðunar er hjá innaríkisráðuneytinu að krefja Gísla Frey Valdórsson um endurgreiðsla þeirra launa sem hann fékk eftir að hann gerðist brotlegur í starfi. 14. nóvember 2014 19:45 Fíladelfíusöfnuðurinn stendur með Gísla Frey „Við viljum sjá hann vinna sig í gegnum þessa erfiðleika sem hann stendur í núna. Við þekkjum hann af góðu einu,“ segir formaður stjórnar Fíladelfíu. 12. nóvember 2014 13:11 Mest lesið Líf ólíklega í hættu en byggð gæti gjöreyðilagst Innlent „Þetta eru atburðir sem við höfum aldrei séð áður“ Innlent Svava Lydia komin í leitirnar Innlent Halla gerði hlé vegna veikinda veislugests Innlent Afsökunarbeiðni til Ólafar ekki í kortunum Innlent Reyndu að sprengja upp hraðbanka sem stendur allt af sér Innlent Segir afnám samsköttunar svik við kjósendur Innlent Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Erlent Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Innlent Viðurkenndi brot gegn barnungri systur en sýknaður Innlent Fleiri fréttir Stoltir Íslendingar af þætti sínum í stærsta fraktflugfélagi Evrópu Taldi sig vanhæfan í að afgreiða umsókn Hvals hf. Halla gerði hlé vegna veikinda veislugests Fyrsta langreyðurin á vertíðinni háði 35 mínútna dauðastríð „Bara einfalt að leyfa fólki að leita að olíu“ Líf ólíklega í hættu en byggð gæti gjöreyðilagst Gosvá á höfuðborgarsvæðinu, dauðastríð og áhorfendabann Katrín vill leiða framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar Hagræðingarhópurinn kostaði rúmar sjö milljónir Viðurkenndi brot gegn barnungri systur en sýknaður Reyndu að sprengja upp hraðbanka sem stendur allt af sér Landris hraðara en eftir síðustu eldgos Gefur kost á sér þrátt fyrir „krankleika“ í vetur og á ekki von á „heiftúðlegum átökum“ „Ekki leika þennan leik“ Félag atvinnurekenda svarar Ríkisendurskoðun Svava Lydia komin í leitirnar „Þetta eru atburðir sem við höfum aldrei séð áður“ Milljarðakrafa varði ekki sérstaklega mikilvæga hagsmuni Afsökunarbeiðni til Ólafar ekki í kortunum Logi í Úkraínu og markaðirnir rétta úr kútnum Myndavélarnar mikilvægar og upptökurnar góð sönnunargögn „Alvarlegt að saka ríkisendurskoðanda um að villa um fyrir Alþingi“ Norðurlöndin vinni með Bandaríkjunum svo þau fari ekki í „ranga átt“ Tímamót í opinberri heimsókn Höllu til Noregs ÍR kveikti á skiltinu án leyfis Vilja betri afkomutryggingu fyrir bændur sem verða fyrir uppskerutjóni Guðmundur Árni sækist eftir endurkjöri Segir afnám samsköttunar svik við kjósendur Tíðir Esjufarar hryggir vegna örlaga Steins Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Sjá meira
Gísli Freyr bað samstarfsfólkið afsökunar Gísli Freyr Valdórsson, fyrrverandi aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, bað samstarfsfólk sitt í innanríkisráðuneytinu afsökunar á lekanum í morgun. 12. nóvember 2014 13:22
Dómur kveðinn upp í dag: Farið fram á þriggja ára fangelsi Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari sagði að játning Gísla Freys geti ekki talist til refsimildunar þar sem Gísli hafi ekki breytt afstöðu sinni fyrr en ljóst var að sönnunargögn nægðu til sakfellingar. 12. nóvember 2014 10:11
Gísli Freyr játaði lekann fyrir Hönnu Birnu Þetta segir ráðherra í tilkynningu til fjölmiðla. Gísla hefur verið vikið úr starfi. 11. nóvember 2014 18:02
Gísli Freyr er sáttur við dóminn Gísli Freyr Valdórsson ætlar að una dómi Héraðsdóms Reykjavíkur og áfrýjar ekki til Hæstaréttar. Segist hafa fests í lygavef og vítahring. 12. nóvember 2014 13:51
Svona var atburðarásin í lekamálinu Gagnvirk tímalína sem sýnir atburðarásina í lekamálinu sem varð til þess að Gísli Freyr Valdórsson var dæmdur í skilorðsbundið fangelsi. 12. nóvember 2014 12:04
Tilkynning Gísla Freys til fjölmiðla: „Get ekki lengur lifað í lygavef“ Gísli Freyr Valdórsson ítrekar að hann hafi ekki vitað að gjörðir hans væru ólöglegar. 11. nóvember 2014 22:15
Bjarni Ben: „Þetta er áfall fyrir okkur öll“ "Aðalatriði málsins eru þau að það er nú upplýst að sá sem treysti á sanngjarna málsmeðferð í dómsmálaráðuneytinu fékk ekki slíka meðferð,“ segir Bjarni. 12. nóvember 2014 17:01
Ráðherra gerði athugasemd við haldlagningu á tölvu Gísla Freys Saksóknari fann ný gögn á tölvu Gísla Freys um helgina. 12. nóvember 2014 11:21
Verjandi Gísla Freys fékk gögnin afhent klukkan þrjú í gær Er ekki sammála því að þessi nýju gögn taki af allan vafa um að Gísli hafi lekið trúnaðargögnunum. 12. nóvember 2014 08:57
„Góður maður hengdur“ Margir félagar Gísla Freys Valdórssonar vilja rísa upp honum til varnar og telja dóminn yfir honum þungan. 12. nóvember 2014 16:01
Sjálfstæðismenn lýsa yfir fullum stuðningi við Hönnu Birnu Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra sagði í samtali við fréttastofu að víðtækur stuðningur við ráðherrann væri innan þingflokksins. 12. nóvember 2014 15:34
Gísli Freyr: „Aldrei getað sætt mig við sýknudóm“ Gísli Freyr Valdórsson var dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi í dag. 12. nóvember 2014 20:55
„Ég ber ekki ábyrgð á lögbrotum“ Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, segist bera pólitíska ábyrgð á sínum undirmönnum en hún beri hins vegar ekki ábyrgð á lögbrotum. Hún segist jafnframt vera búin að segja af sér embætti. 12. nóvember 2014 17:43
„Stolt eiginkona Gísla sem gerðist maður að meiri að viðurkenna mistök sín“ Rakel Lúðvíksdóttir, eiginkona Gísla Freys Valdórssonar, lýsir yfir fullum stuðning við eiginmann sinn á samskiptamiðlinum Facebook. 12. nóvember 2014 10:03
Gögn sýna fram á rangar staðhæfingar Gísla Freys Gísli Freyr Valdórsson, fyrrverandi aðstoðarmaður innanríkisráðherra, hefur viðurkennt að hafa látið fjölmiðlum í té persónuupplýsingar um hælisleitandann Tony Omos. 12. nóvember 2014 07:00
Gísli Freyr í skilorðsbundið átta mánaða fangelsi Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 12. nóvember 2014 11:00
Gísli ræddi við Sigríði daginn sem gögnin voru birt Aðstoðarmaður innanríkisráðherra átti í talsverðum samskiptum við Sigríði Björk Guðjónsdóttur, þáverandi lögreglustjóra á Suðurnesjum, daginn sem fréttir birtust byggðar á leka úr ráðuneytinu. 18. nóvember 2014 09:57
Gísli Freyr sagði sig úr stjórn Fíladelfíu Gísli Freyr Valdórsson hefur sagt sig úr stjórn og rekstrarráði kirkjunnar í dag. Þetta staðfesti Aron Hinriksson, forstöðumaður safnaðarins, í samtali við Vísi. 12. nóvember 2014 22:06
Segist hafa játað samviskunnar vegna Gísli Freyr Valdórsson segir engan annan hafa vitað að hann stæði að baki leka úr innanríkisráðuneytinu. 11. nóvember 2014 20:15
Gísli Freyr grét í dómsal Eiginkona hans þerraði tárin á hvarmi hans að fyrirtöku lokinni. 12. nóvember 2014 11:43
Hugsanlegt að Gísli verði krafinn um endurgreiðslu Til skoðunar er hjá innaríkisráðuneytinu að krefja Gísla Frey Valdórsson um endurgreiðsla þeirra launa sem hann fékk eftir að hann gerðist brotlegur í starfi. 14. nóvember 2014 19:45
Fíladelfíusöfnuðurinn stendur með Gísla Frey „Við viljum sjá hann vinna sig í gegnum þessa erfiðleika sem hann stendur í núna. Við þekkjum hann af góðu einu,“ segir formaður stjórnar Fíladelfíu. 12. nóvember 2014 13:11