Lífið samstarf

Ný og glæsileg vefverslun NTC

Glæsileg vefverslun NTC fer í loftið á mánudag.
Glæsileg vefverslun NTC fer í loftið á mánudag.
Á mánudag opnar glæsileg vefverslun NTC.  „Í vefversluninni verða 11 af verslunum NTC og þar á meðal Gallerí Sautján, GS Skór, Kultur, Eva og Smash. Í vefversluninni bjóðum við  upp á helstu merkin frá öllum búðunum okkar,“ segir María Einarsdóttir, verkefnastjóri hjá NTC. „Fólk getur keypt vörur hjá okkur í vefversluninni og annað hvort fengið hana senda heim eða sótt hana í Kringluna eða Smáralind en það sparar bæði tíma og póstburðargjald.“

13 af verslunum NTC verða í vefversluninni
María segir vefverslun NTC vera einfalda í notkun og hægt verði að leita eftir vörum á ýmsan máta. „Neytandinn getur skoðað og leitað eftir vörum með sínum hætti, það er hægt að leita eftir merkjum, hægt að skoða hvað fæst í ákveðnum verslunum en hver verslun verður með sína eigin síðu í vefversluninni og svo er líka hægt að leita eftir ákveðnum vörum, til dæmis jökkum. Á síðunni koma upp vörur sem passa með þeirri vöru sem fólk skoðar sem getur verið mjög þægilegt,“ segir María.

Í vefversluninni má fá vörur frá hinum ýmsu merkjum.
Í framtíðinni verður síðan þróuð enn frekar og mun verða að lífstílsbloggi og vefverslun í bland. „Okkur langar að vera með tískufréttir og fleira og því höfum við fengið til liðs við okkur þrjá þekkta lífsstílsbloggara, þær Andreu Röfn hjá Trendneti, Fanneyju Ingvars og Eddu Gunnlaugs hjá Femme.is, sem verða með vikulega pistla hjá okkur.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×