Garðabær sýknaður af 35 milljóna skaðabótagreiðslu Samúel Karl Ólason skrifar 28. nóvember 2014 10:37 Áður hafði héraðsdómur Reykjaness dæmt konunni, sem er 85 ára gömul, 35 milljónir í skaðabætur. Vísir/Sigurjón
Hæstiréttur segir Garðabæ ekki bera ábyrgð á stórfeldum skemmdum á einbýlishúsi eldri konu. Áður hafði héraðsdómur Reykjaness dæmt konunni, sem er 85 ára gömul, 35 milljónir í skaðabætur, en Hæstiréttur sneri dómnum við. Konan og eiginmaður hennar keyptu húsið sem er við Goðatún í lok sjöunda áratugarins. Undirlag þessa svæðis er mýrlendi og í dómnum segir að dýpi niður á fastan jarðveg sé um eða yfir þrír metrar. Sökklar hússins ná ekki niður á fast, heldur fljóta á jarðveginum. Árið 1979 var húsið klætt að utan og bílskúr byggður við það. Fljótlega urðu hjónin vör við sig á húsinu og þurfti að gera við gólfplötu hússins árið 1987. Konan heldur því fram að húsið hafi þá náð jafnvægi og verið stöðugt fram til ársins 2008 þegar Garðabær hóf stórfelldar framkvæmdir í næstu götu. Hún segir framkvæmdir Garðabæjar við næstu götu hafa valdið sigi á húsinu, en það er ónýtt. Matsmaður telur kostnað við endurbyggingu þess vera rúmar 46 milljónir króna. Árið 2008 var nýtt safnræsi lagt í Silfurtúni og liggur það 23,65 metra frá húsi konunnar. Þar að auki var akbraut Silfurtúns endurnýjuð. Matsmaður sagði þær framkvæmdir hefðu hæglega getað valdið því að titringur frá valtara hefði borist með jarðlögum í nærliggjandi hús. Í héraðsdómi kom fram að hæðarflötur gólfs hússins væri mjög óreglulegur vegna sigs undir botnplötu, sem er brotin, og sökklum hússins. Það yrði alltaf viðkvæmt fyrir ytri breytingum. Fargaukning eða lækkun á grunnvatnsstöðu hefði áhrif á rúmmál mýrarjarðvegs og húsið fylgdi hreyfingum á honum. Hæstiréttur segir framkvæmdirnar árið 2008 hafi ekki verið umfangsmeiri en endurgerð Goðatúns árið 1979, né hafi stærri tæki verið notuð en venjulegt sé. Vegna þess hve viðkvæmt húsið hafi verið fyrir öllum umhverfisáhrifum og að ekki hafi verið hægt að finna raunhæfar leiðir til að sem hefðu komið í veg fyrir tjónið. „Af þeirri ástæðu hefði áfrýjandi ekki getað endurgert götuna eða lagt safnræsið þar sem hvor framkvæmd um sig gat valdið sigi á húsi stefndu vegna þess hvernig staðið var að byggingu hússins í öndverðu.“ Hæstiréttur sýknaði Garðabæ og gerði báðum aðilum að greiða sinn málskostnað. Dóminn má sjá hér.
Mest lesið „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Innlent Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Innlent Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð Innlent Vistmaður og starfsmaður Stuðla fluttir á bráðamóttöku Innlent Snorri vill leiða Miðflokkinn í Reykjavík Innlent Átti samtal við Höllu Hrund fyrir stjórnarslitin Innlent Grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu Innlent Fleiri fréttir Kom ekkert annað til greina en Miðflokkurinn Kostnaður við snagana nam 1,7 milljónum Fluttur á spítala vegna alvarlegs efnabruna af völdum ætandi efnis Slátur og stuð í félagsheimilinu á Blönduósi Alma vill leiða Samfylkinguna í Kraganum Nektarmyndir gerðar óskýrar sjálfkrafa á Instagram Grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu Hannes snýr baki við Sjálfstæðisflokknum og fer fram fyrir Samfylkingu Átti samtal við Höllu Hrund fyrir stjórnarslitin Vendingar í pólitíkinni og áhrif frestunar bankasölu á markaðinn Guðmundur Árni hættur við og styður Ölmu Vistmaður og starfsmaður Stuðla fluttir á bráðamóttöku Bilun í brunaboða á Keflavíkurflugvelli Snorri vill leiða Miðflokkinn í Reykjavík Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Slagurinn harðnar í Suðvestur hjá Sjálfstæðisflokki „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Formaður Framsóknar segir ríkisstjórnina hafa talað sjálfa sig niður Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð „Það þarf að nýta auðlindir landsins, það er alveg ljóst“ Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Fleiri þvottavélar en pólitíkusar á skjánum vikuna fyrir kosningar Hefur sett saman um 100 módelbíla í Hveragerði Dæmi um að menntaðir kennarar nái ekki endum saman Óvænt og taktískt útspil Sigurðar Inga Páll Valur vill forystusæti fyrir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi Fyrstu skoðanakannanir eftir stjórnarslit og öll auglýsingapláss uppbókuð Lætur af störfum sem bæjarstjóri Voga Vill leiða Viðreisn í Suðurkjördæmi Sjá meira