Erlent

Kemur í ljós í dag hvort dómnum yfir Pistoriusi verði áfrýjað

Vísir/AFP
Dómari í Suður Afríku mun ákveða það í dag hvort saksóknarar í máli Oscars Pistoriusar fái að áfrýja dómnum yfir honum sem féll í október. Pistorius var dæmdur fyrir manndráp af gáleysi þegar hann skaut unnustu sína Reevu Steenkamp á heimili þeirra á síðasta ári. Saksóknarar voru afar óánægðir með að Pistorius skyldi aðeins fá fimm ára fangelsisdóm og því var ákveðið að áfrýja. Það skýrist semsagt í dag hvort fallist verði á þá áfrýjun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×