Lífið

Önnur Kardashian-systir situr fyrir nakin

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Raunveruleikastjarnan Kourtney Kardashian fetar í fótspor systur sinnar, Kim, í nýjasta hefti DuJour.

Í tímaritinu situr Kourtney fyrir nakin en hún á von á sínu þriðja barni með sínum heittelskaða, Scott Disick. Skemmst er frá því að minnast þegar Kim Kardashian sat allsnakin fyrir í tímaritinu Paper.

"Ég sat fyrir nakin þegar ég gekk með Mason en það var á síðustu stundu og bara fyrir sjálfa mig og ég elskaði það," segir Kourtney í samtali við DuJour. Mason er fjögurra ára í dag og dóttir þeirra Scotts, Penelope, er tveggja ára.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×