Tíska og hönnun

Ég fíla ekki mikinn glans og glimmer

Marín Manda skrifar
Guðrún Jóna Stefánsdóttir
Guðrún Jóna Stefánsdóttir
Guðrún Jóna Stefánsdóttir er að læra mannfræði og fjölmiðlafræði við Háskóla Íslands. Hún segist vera mikið fyrir að klæða sig upp hversdagslega og vill alls ekki mikinn glans og glamúr nema við stórhátíðleg tækifæri. Áhugamálin snúa aðallega að hreyfingu og tísku en hún stundar jóga og kennir fimleika í Gróttu.

Pallíettutoppurinn

Ég fékk þennan í Spútnik fyrir ca. 10 árum. Ég keypti hann fyrir árshátíð hjá 17 þegar ég var 17 ára og vaknaði til tískuvitundar. Ég hef notað hann við ýmis tækifæri en hann er svona sígildur sparitoppur sem alltaf er hægt að grípa í.

Blómagollan



Þetta er kímónó sem ég keypti á fatamarkaði fyrir nokkrum árum. Ég gróf hann upp og er rosalega ánægð með hann en svona kímónóar eru mikið í tísku núna.

Leðurbuxurnar

Þessar fékk ég á fatamarkaði á Prikinu. Þetta eru háar pokaleðurbuxur. Ég er meira fyrir að kaupa mér föt sem ég get notað bæði hversdags og fínt. Annaðhvort klæði ég það svo upp eða niður.

Farmers Market Aigle-stígvélin

Stígvélin eru í algjöru uppáhaldi hjá mér. Þau passa í raun við allt. Hvort sem ég er í skólanum eða að skreppa í bíó, þá get ég farið í þeim. Þau eru með örlitlum hæl sem er mjög skemmtilegt. 

Burberry-jakkinn

Ég fékk jakkann í afmælisgjöf frá Rúnari kærasta mínum og þetta er besti jakki sem ég hef eignast. Hann er úr Geysisbúðinni sem er uppáhaldsbúðin mín. Ég get notað hann við allt. Bæði í skólann og þegar ég er að fara út eitthvað aðeins fínna.

Farmers Market-peysan

Ég fékk hana í jólagjöf frá kærastanum. Hann koma mér svolítið á óvart. Ég kaupi mér ekki mikið af fötum sjálf hér heima nema á mörkuðum eða í Kolaportinu svo það er æðislegt að fá falleg föt að gjöf. Þessi peysa er ótrúlega þægileg og ég get notað hana rosalega mikið. Hún er hlý og fín og í miklu uppáhaldi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×