Formúla 1

Red Bull gæti ógnað Mercedes fljótlega

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Nico Rosberg og Sebastian Vettel í harðri baráttu.
Nico Rosberg og Sebastian Vettel í harðri baráttu. Vísir/Getty
Spænski kappaksturinn og Mónakó kappaksturinn snúast meira um að hafa mikið niðurtog en hraða. Öfugt við fyrstu fjórar keppnir tímabilsins, þar sem Mercedes liðið hefur haft algjöra yfirburði.

Mercedes hefur meiri hraða en nokkurt annað lið á beinum köflum og gott niðurtog í beygjum en Reb Bull bíllinn hefur enn betra niðurtog. Það mun skipta miklu máli í komandi keppnum.

„Red Bull bíllinn er mjög, mjög fljótur í hröðum (beygjum), sem segir mér að hann hafi kannski örlítið meira niðurtog en við,“ sagði Lewis Hamilton ökumaður Mercedes.

Þrátt fyrir hugsanleget forskot Red Bull gæti vel farið svo að aflmunurinn dugi Mercedes til áframhaldandi sigurgöngu. En líklega verður munurinn þó ekki eins mikill. Renault þykir líklegt til að koma með miklar uppfærslur á vélinni til Spánar. Vélinni sem meðal annars knýr Red Bull bílinn.

„Mikilvægasta atriðið (fyrir Renault) er að vinna að og ná framförum sem fyrst. Við skulum bíða og sjá eftir 2 til 3 keppnir þá gæti staðan verið allt önnur,“ sagði hinn fjórfaldi heimsmeistari Alan Prost.

Keppnin á Spáni fer fram 11. maí og Mónakó kappaksturinn þann 25. maí.


Tengdar fréttir

Vettel vantar nýjan undirvagn

Sebastian Vettel mun fá nýjan undirvagn fyrir spænska kappaksturinn. Hann hefur átt í vandræðum hingað til en Red Bull vonar að nýr undirvagn hjálpi fjórfalda heimsmeistaranum.

Svona vann Hamilton þriðju keppnina í röð - myndband

Stöð 2 Sport sýndi beint frá Formúlu 1 kappakstrinum í Kína í morgun og eftir kappaksturinn var farið yfir það helsta sem gerðist í keppninni í dag. Nú er hægt að sjá Samantektarþáttinn hér inn á Vísi.

Lewis Hamilton aldrei ógnað í Kína

Lewis Hamilton á Mercedes vann kínverska kappaksturinn. Liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð annar og Fernando Alonso á Ferrari varð þriðji.

Hamilton fljótastur á seinni æfingunni

Lewis Hamilton á Mercedes náði hraðasta hring á seinni föstudagsæfingunni fyrir Kínakappasturinn í formúlu eitt. Fernando Alonso á Ferrari varð annar. Nico Rosberg á hinum Mercedes bílnum varð þriðji, á undan Red Bull bílunum.

Lewis Hamilton á ráspól í Kína

Lewis Hamilton náði ráspól í Kína. Red Bull bílarnir voru svo næstir, Daniel Ricciardo náði öðru sæti á ráslínu og Sebastian Vettel því þriðja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×