Neyðarfundur hjá SÞ vegna Úkraínu Stefán Ó. Jónsson skrifar 1. mars 2014 17:34 VISIR/AFP
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kemur saman til fundar í kvöld til að ræða ástandið sem komið er upp á Krímskaga. Vladímír Pútín forseti Rússlands segist ekki hafa tekið neina ákvörðun þess efnis að senda herlið til Úkraínu þrátt fyrir ítrekaðar áskanir þarlendra stjórnvalda. Úkraínustjórn hefur lýst yfir að Rússar hafi nú þegar sent á sjöunda þúsund hermanna til landsins og að þeir hafi tekið sér stöðu um þinghús og flugvöll Krímhéraðs. Forsætisráðherra héraðsins leitaði á náðir Rússneskra yfirvalda til að tryggja friðinn á svæðinu. Íbúar þar eru að miklum meirihluta rússneskumælandi og af rússneskum ættum og vilja meiri tengsl við Rússa en önnur lönd. Vísir hefur áður greint frá því að rússneska þingið samþykkti að senda herlið á Krímskagann nú fyrir skömmu. Einnig var samþykkt að kalla heim sendiherra landsins frá Bandaríkjunum en leiða má líkur að því að það sé vegna yfirlýsinga Obama forseta þar sem hann varaði Rússa við afleiðingum þessa að senda herlið til Úkraínu.
Úkraína Mest lesið Menn hér á landi verið tengdir hryðjuverkasamtökum Innlent Fjölga rýmum á öryggisgeðdeild og ný stofnun í startholunum Innlent Höfðar mál gegn Íslandi vegna úrgangsmála Innlent Fluttur á slysadeild eftir líkamsárás Innlent Enn stefnt á uppbyggingu þótt talan hundrað sé ekki heilög Innlent Bilun í stofnneti Ljósleiðarans Innlent „Ekki kynnst alvöru málþófi ef þau telja þetta vera mikið málþóf“ Innlent Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Adolescence gott samfélagsinnlegg en ekki góð forvörn Innlent Hryssurnar lamdar, ýtt í þær með prikum og þær beittar afli Innlent Fleiri fréttir Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Sjá meira