Menning

Blýanturinn fljúgandi opnar á morgun

Ólöf Helga
Ólöf Helga Vísir/Týsgallerí
Ólöf Helga Helgadóttir opnar sýninguna Blýanturinn fljúgandi í Týsgallerí á morgun klukkan fimm.

Ólöf vinnur með blandaða tækni en undanfarin ár hefur hún unnið mikið með pappír sem efnivið. Hún vann í tilraunarýminu Öruggt Rými og hefur tekið þátt í verkefnum í Nýlistasafninu og í gallerí Kunstschlager.

Þetta er hennar fyrsta einkasýning, en hún hefur áður tekið þátt í samsýningum hér heima og erlendis.

Ólöf útskrifaðist frá Slade School of Fine Art árið 2010, en áður útskrifaðist hún úr Listaháskóla Íslands árið 2005.

Verk eftir Ólöfu Helgu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.