Menning

Frekar lukkuleg með lífið

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
 "Mér finnst þetta gríðarlegur heiður og mikil viðurkenning á starfi mínu sem þýðanda,“ segir Ingunn Ásdísardóttir sem í gær hlaut Íslensku þýðingaverðlaunin.
"Mér finnst þetta gríðarlegur heiður og mikil viðurkenning á starfi mínu sem þýðanda,“ segir Ingunn Ásdísardóttir sem í gær hlaut Íslensku þýðingaverðlaunin. Vísir/GVA
Þetta er náttúrulega afskaplega góð tilfinning,“ segir Ingunn Ásdísardóttir þýðandi spurð hvernig henni líði eftir úthlutun Íslensku þýðingaverðlaunanna sem Bandalag þýðenda og túlka hefur veitt árlega síðan 2005. „Ég er eiginlega furðanlega róleg, en mér finnst þetta gríðarlegur heiður og mikil viðurkenning á starfi mínu sem þýðanda. Mér finnst líka afskaplega skemmtilegt að það skuli vera ný bók frá nágrönnum okkar Færeyingum sem hlýtur þessi verðlaun.“



Ingunn segir verðlaunin hafa komið sér dulítið á óvart þar sem hin verkin sem tilnefnd voru séu slík bókmenntaleg stórvirki. „Það eru þarna gríðarlega flott verk, Tranströmer, Heródótus og Faulkner, sem allt eru klassísk verk. Oft hafa þessi verðlaun fallið í hlut þýðenda klassískra verka, sem er vel, en það er náttúrulega líka mjög nauðsynlegt að þýða samtímabókmenntir og mér finnst ekkert leiðinlegt að vera komin í hóp með Gyrði Elíassyni, Kristjáni Árnasyni og Ingibjörgu Haraldsdóttur, svo ég nefni nokkur dæmi um fólk sem hlotið hefur verðlaunin á undan mér. Það er ekki slæmur hópur að vera í.“



Dagurinn í gær var merkilegur í lífi Ingunnar fyrir tvennar sakir, því auk þess að veita þýðingarverðlaununum viðtöku skilaði hún af sér nýjustu þýðingu sinni, sem jafnframt verður hennar síðasta í bili. „Já, ég var að skila af mér þýðingu á skáldsögu eftir dönsku skáldkonuna Naja Marie Aidt. Áður hafði ég þýtt eftir hana smásagnasafnið Bavíana, sem hún hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir, en þetta er hennar fyrsta skáldsaga og alveg mögnuð bók. Þannig að þetta er tvöfaldur hátíðisdagur hjá mér.“



Spurð hvort fleiri þýðingar séu á döfinni segir Ingunn svo ekki vera í bráð þar sem hún hafi nýverið hlotið Rannís-styrk til að ljúka við doktorsverkefni sitt sem fjallar um norræna goðafræði. „Það er næsta mál á dagskrá að ráðast í að klára doktorsrannsóknina, sem ég hlakka mikið til, svo ég er bara frekar lukkuleg með lífið núna,“ segir verðlaunaþýðandinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.