Aðskilnaðarsinnar fá sjálfsstjórn og sakaruppgjöf Atli Ísleifsson skrifar 16. september 2014 11:23 Rúmlega þrjú þúsund manns hafa látið lífið frá því að átök hófust í austurhluta Úkraínu í apríl síðastliðinn. Vísir/AFP
Héruð í austurhluta Úkraínu, sem aðskilnaðarsinnar ráða nú að stórum hluta yfir, hljóta sjálfstjórn og liðsmönnum aðskilnaðarsinna verður veitt almenn sakaruppgjöf samkvæmt nýjum lögum úkraínska þingsins sem samþykkt voru í morgun. Ákvörðunin er í samræmi við vopnahléssamkomulagið frá 5. september sem Petró Pórósjenkó Úkraínuforseti skrifaði undir. Almenn sakaruppgjöf nær til uppreisnarmanna í Dónetsk og Luhansk-héraði, en ekki þeirra sem skutu niður MH17 vél malasíska flugfélagsins Malaysia Airlines. Evrópuþingið og úkraínska þingið samþykktu í dag að fullgilda nýjan tímamótasamning um samstarf milli Úkraínu og Evrópusambandsins. Viðræður við Rússa sem fram fóru í síðustu viku leiddu til þess að fríverslunarákvæði samkomulagsins mun ekki taka gildi fyrr en 2016. Samkvæmt nýju lögunum verður aðskilnaðarsinnum á bandi Rússlandsstjórnar, sem enn eru í haldi úkraínskra yfirvalda, sleppt. Aðskilnaðarsinnar sem ráða yfir stjórnarbyggingum í Dónetsk og Luhansk eiga samkvæmt samkomulaginu að yfirgefa þær, sleppa föngum og afhenda vopn sín.Í frétt BBC segir að fjöldi aðskilnaðarsinna hafi hins vegar farið fram á að fá fullt sjálfstæði og stofna ríkið „Novorossiya“, sem Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur jafnframt minnst á í ræðum sínum. Rúmlega þrjú þúsund manns hafa látið lífið frá því að átök hófust í austurhluta Úkraínu í apríl síðastliðnum. Þá hafa um 310 þúsund neyðst til að flýja heimili sín og eru á vergangi innan landamæra Úkraínu.
Mest lesið „Þetta eru atburðir sem við höfum aldrei séð áður“ Innlent Svava Lydia komin í leitirnar Innlent Líf ólíklega í hættu en byggð gæti gjöreyðilagst Innlent Afsökunarbeiðni til Ólafar ekki í kortunum Innlent Segir afnám samsköttunar svik við kjósendur Innlent Reyndu að sprengja upp hraðbanka sem stendur allt af sér Innlent Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Innlent Viðurkenndi brot gegn barnungri systur en sýknaður Innlent Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Erlent Lýsa eftir Svövu Lydiu Innlent Fleiri fréttir Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Grunaður um að verða mæðgum að bana Tóku mið af viðskiptahalla en ekki tollum „Kokkurinn“ í Bandidos látinn Draga sig úr Alþjóðasakamáladómstólnum fyrir heimsókn Netanjahú Kvarta sáran yfir vopnakaupum Evrópu Sjá meira