Menning

Verk fimmtán ára tónskálds flutt í Berlín

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Hjalti Nordal Gunnarsson: „Það voru fjögur verk valin til flutnings á tónleikunum og mitt var eitt af þeim.“
Hjalti Nordal Gunnarsson: „Það voru fjögur verk valin til flutnings á tónleikunum og mitt var eitt af þeim.“ Mynd: Gunnar Karlsson
Þetta er tónsmíðakeppni á vegum Berlínarfílharmóníunnar sem heitir Opus one og er fyrir unglinga á aldrinum fjórtán til nítján ára,“ segir Hjalti Nordal Gunnarsson spurður út í tildrög þess að meðlimir úr Berlínarfílharmóníunni og hljómsveit akademíu hennar fluttu strengjatríó eftir hann á tónleikum á sunnudagskvöldið. „Á vefsíðunni stóð að keppnin væri fyrir þýska ríkisborgara en ég sendi þeim tölvupóst og spurði hvort ég mætti vera með, sem var samþykkt. Það voru fjögur verk valin til flutnings á tónleikunum og mitt var eitt af þeim. Auk þess var það eina verkið úr samkeppninni sem var valið til flutnings á sérstökum kammertónleikum Fílharmóníunnar seinna um kvöldið.“



Hjalti, sem er fimmtán ára, stundar fiðlunám hér heima og hefur ekki lært tónsmíðar en segist þó hafa samið nokkur tónverk. „Ég hef samt ekki samið mjög mikið,“ segir hann hógvær.



Hjalti tók ekki þátt í flutningi verksins en var viðstaddur tónleikana og segir það hafa verið góða upplifun. „Ég var bara áhorfandi og það var mjög góð tilfinning að hlusta á þessa fínu spilara flytja verkið mitt,“ segir hann. „Ég var mjög ánægður.“



Íslenskum áheyrendum til upplyftingar bendir hann á að ákveðið hafi verið að nemendur Tónlistarskólans í Reykjavík flytji strengjatríóið á næstunni en ekki sé enn ákveðið hvenær það verði. „Þetta er allt svo nýtilkomið,“ segir hann. „En verkið verður flutt heima fljótlega.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.