Formúla 1

Litlu liðin biðja um hjálp í bréfi sem var lekið

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Claire Williams, liðsstjóri Williams og Bob Fernley, aðstoðarliðsstjóri Force India ræða málin.
Claire Williams, liðsstjóri Williams og Bob Fernley, aðstoðarliðsstjóri Force India ræða málin. Vísir/Getty
Bréf frá aðstoðarliðsstjóra Force India, Bob Fernley til Bernie Ecclestone eiganda sjónvarpsréttar af Formúlu 1 hefur verið lekið.

Í bréfinu biðlar Fernley til Ecclestone um aukið fjármagn til minni liðanna eða að sett verði eyðsluþak. Ecclestone hafði þegar sagst ætla að ræða við stóru liðin og óska eftir að þau gefi eftir hluta af verðlaunafé sínu til að hjálpa þeim minni.

Hugmyndin var ekki samþykkt af hinum „stóru fimm,“ sem þýðir að Force India, Lotus og Sauber hafa ekki fengið ósk sína uppfyllta.

Í brefinu hvetur Fernley Ecclestone til að finna leið til að dreifa fjármagninu innan Formúlu 1 á sanngjarnari hátt. Eins og staðan er núna fá stóru fimm liðin (Ferrari, Red Bull, McLaren, Mercedes og Williams) um það bil 70 prósent af því fjarmagni sem er ætlað liðunum, sem eru rúmar 700 milljónir punda (135,7 milljarðar króna).

Af þessu dreifast um 20 prósent til Force India, Lotus, Sauber og Toro Rosso en 10 prósent skiptast á milli Caterham og Marussia.

„Eftir fund okkar í Brasilíu er augljóst að Formúla 1 stefnir í átt til þess að litlu liðin kaupa tilbúna bíla af stóru liðunum, einskonar ofur GP2. Það er jafn augljóst að skipulagshópurinn er ekki að fara að lækka kostnað,“ skrifaði Fernley í bréfið.

„Við viljum undirstrika það að við komum aðallega til þín með ósk um lægri kostnað. Vegna áhugaleysis fyrir því óskum við nú eftir að innkomunni verði dreift á jafnari hátt til að koma á móti auknum kostnaði,“ bætti Fernley við.

Hann hafnar því í bréfinu að peningasóun og stjórnleysi sé um að kenna, líkt og Ecclestone hefur haft orð á. Fernley bendir á að um 70 prósent af innkomunni fari í kaup á vélum fyrir tímabilið.

Að lokum óskar Fernley eftir öðrum fundi á næstunni til að ræða frekari leiðir til að koma fjárhag Formúlu 1 í betri skorður.


Tengdar fréttir

Caterham má missa af tveimur keppnum

Bernie Ecclestone er tilbúinn að leyfa Caterham liðinu að sleppa tveimur næstu keppnum til að einbeita sér að því að finna kaupendur.

Haas: Fyrstu fimm árin snúast um að komast af

Gene Haas segir að fyrstu fimm árin hjá nýju formúlu 1 liði hans muni snúast um að komast af. Hann ætlar að læra af mistökum annarra nýrra liða í gegnum tíðina.

Bílskúrinn: Ballið í Brasilíu í bland við framtíðarspá

Næst síðasta keppni tímabilsins er búin. Lewis Hamilton leiðir enn þrátt fyrir að Nico Rosberg hafi unnið í Brasilíu. Hvað þarf að gerast til að Rosberg verði meistari, hver sagði hvað um framtíð Formúlu 1 og hver ætlar að hjálpa hverjum að verða heimsmeistari?

Bræður vilja bjarga Marussia

Bresk-indverskir bræður, Baljinder Sohi og Sonny Kaushal eru nú í samningaviðræðum við forsvarsmenn Marussia. Þeim virðist vera full alvara í að reyna að bjarga liðinu.

Marussia missir af næstu keppni

Bernie Ecclestone, einráður formúlu 1 hefur staðfest að Marussia muni, ásamt Caterham liðinu missa af bandaríska kappakstrinum næstu helgi.

Caterham ætlar til Abú Dabí

Caterham undirbýr nú endurkomu til keppni í Formúlu 1. Eftir að hafa misst af keppninni í Texas mun liðið einnig missa af keppninni í Brasilíu um helgina. Caterham ætlar að koma til Abú Dabí sem er lokakeppni tímabilsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×