Hollendingar fara mjög svipaða leið og Íslendingar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. mars 2014 15:15 Guus Hiddink og Lars Lagerback. Vísir/AFP
Hollendingar fara nánast sömu leið og Íslendingar þegar kemur að því að ráða þjálfara á karlalandslið þjóðarinnar í fótbolta. Hollenska knattspyrnusambandið tilkynnti nefnilega um næstu tvo þjálfara landsliðsins í dag en það var reyndar vitað fyrir nokkru að Guus Hiddink væri að taka við. Nú er það hinsvegar endanlega staðfest að Guus Hiddink taki við hollenska landsliðinu af Louis van Gaal eftir HM í Brasilíu í sumar og mun Hiddink stýra Hollendingum út næstu undankeppni EM þar sem Holland er meðal annars í riðli með Íslandi. Hollenska sambandið tilkynnti ennfremur að Danny Blind taki við hollenska landsliðinu eftir EM 2016 en fram að því verður Blind aðstoðarmaður Guus Hiddink ásamt Ruud van Nistelrooy. Blind fékk því fjögurra ára samning, fyrsti tvö árin sem aðstoðarþjálfari og næstu tvö sem aðalþjálfari. Knattspyrnusamband Íslands gerði svipaða hluti á dögunum þegar Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson voru ráðnir landsliðsþjálfarar en um leið var tilkynnt að Heimir taki síðan einn við landsliðinu eftir EM 2016. Guus Hiddink er orðinn 67 ára gamall (Lars Lagerbäck er 65 ára) og er nú öðru sinni orðinn A-landsliðsþjálfari Hollendinga en hann þjálfaði einnig liðið frá 1994 til 1998.
Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Kvartar undan Man. City við Evrópusambandið Enski boltinn Segir Trump að hætta þessu bulli varðandi Kanada Fótbolti Víkingar skipta um gír Íslenski boltinn Fékk egg í andlitið á blaðamannafundi: „Skítuga eggjakakan þín“ Sport Apaummæli Mourinho kostuðu hann mikið Fótbolti „Getum gengið stoltar frá borði“ Handbolti Gera grín að Jürgen Klopp Fótbolti Dagskráin í dag: Rashford, Bónus deild karla og margt fleira Sport Sjóðandi heitur Curry gaf mömmu sinni treyjuna eftir leik Körfubolti Tók hana fjögur ár að skrifa ævisögu Anníe Sport Fleiri fréttir Gera grín að Jürgen Klopp Víkingar skipta um gír Kvartar undan Man. City við Evrópusambandið Segir Trump að hætta þessu bulli varðandi Kanada Apaummæli Mourinho kostuðu hann mikið Hamrarnir héldu Refunum í fallsæti Bologna kom til baka gegn AC Milan Echeverri má loks spila fyrir Man City Valdi Laudrup besta fótboltamann sögunnar Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Liverpool rak stjóra kvennaliðsins Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Vilja banna fullorðnum leikmönnum að nota barnalegghlífar Tekinn af velli eftir að hann fékk morðhótanir úr stúkunni Sektin hans Messi er leyndarmál Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Elísabet byrjar á tveimur töpum Orri og félagar þurfa að koma til baka á Santiago Bernabéu Komnir með þrettán stiga forskot Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Haaland sneri aftur og var hetjan Atli Sigurjóns framlengir við KR Darwin Núnez langt frá efstu mönnum í klúðruðum dauðafærum Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Tannvesen á Mbappé sem spilar ekki í kvöld Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Ótrúlegir taktar á æfingu hjá Pablo Punyed Sjá meira