Janúkovítsj boðar breytingar Bjarki Ármannsson skrifar 25. janúar 2014 08:00 Viktor Janúkovítsj, annar frá vinstri, fundar með leiðtogum stjórnarandstöðunnar síðastliðinn fimmtudag. vísir/AP
Viktor Janúkovítsj, forseti Úkraínu, tilkynnti í gær að hann hygðist sleppa úr haldi fjölmörgum mótmælendum og endurskipa ríkisstjórn sína í kjölfar mikilla mótmæla í landinu undanfarna mánuði. Að minnsta kosti tveir létu lífið í átökum við lögreglu í vikunni. Mótmælin í Kænugarði, sem hófust upphaflega vegna frestunar Janúkóvítsj á fyrirhuguðum verslunarsamningi við Evrópusambandið, hafa að mestu farið friðsamlega fram undanfarna tvo mánuði. Forsetinn virðist þó hafa hellt olíu á eldinn þegar hann tilkynnti í síðustu viku ný lög sem bönnuðu með öllu mótmæli í landinu. Átök við lögreglu færðust við það í aukana og eru dæmi um að mótmælendur hafi fleygt grjóti og eldsprengjum að sveitum stjórnvalda. Voru fjölmargir handteknir í kjölfarið. Janúkovítsj tók til máls á fundi með trúarlegum leiðtogum í gær og ábyrgðist þar að mótmælendalögunum yrði breytt, þeir sem handteknir voru fyrir litlar sakir verði frjálsir ferða sinna og að hann muni breyta til í ríkisstjórn landsins. Stjórnarandstaðan krefst þess þó enn að hann segi af sér og að boðað verði til kosninga á næstunni.
Úkraína Mest lesið Menn hér á landi verið tengdir hryðjuverkasamtökum Innlent Fjölga rýmum á öryggisgeðdeild og ný stofnun í startholunum Innlent Höfðar mál gegn Íslandi vegna úrgangsmála Innlent Fluttur á slysadeild eftir líkamsárás Innlent Enn stefnt á uppbyggingu þótt talan hundrað sé ekki heilög Innlent Bilun í stofnneti Ljósleiðarans Innlent „Ekki kynnst alvöru málþófi ef þau telja þetta vera mikið málþóf“ Innlent Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Adolescence gott samfélagsinnlegg en ekki góð forvörn Innlent Hryssurnar lamdar, ýtt í þær með prikum og þær beittar afli Innlent Fleiri fréttir Fæddi barn ókunnugrar konu vegna mistaka Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Sjá meira