Menning

Nálgast Mozart sem vin

Ugla Egilsdóttir skrifar
Domenico Codispoti hefur komið margoft til Íslands.
Domenico Codispoti hefur komið margoft til Íslands. Mynd/Gettyimages
Ítalski píanistinn Domenico Codispoti spilar á minningartónleikum í tilefni af afmæli Wolfgangs Amadeusar Mozart á Kjarvalsstöðum á mánudaginn klukkan 18, ásamt strengjakvartett.

„Ég reyni að nálgast verk Mozarts eins og hann sé vinur minn,“ segir Domenico. „Oft er sagt að aðeins börn og gamalmenni geti spilað lög eftir Mozart og ég er hvorugt,“ segir hann. „Ég er mitt á milli.“

Domenico segist reyna að draga fram það vinalega í tónlist Mozarts í sinni túlkun, sem hann vill meina að sé eins konar millivegur á milli þungans sem einkenndi síðustu tónverk Mozarts og léttleikans í tónlistinni sem Mozart samdi snemma á ferlinum. „Þannig upplifi ég tónlist hans um þessar mundir, sem vinalega,“ segir Domenico.

Spilaðir verða tveir píanókonsertar eftir Mozart á tónleikunum, kv-414 og 415. „Mozart samdi þessa konserta snemma á ferlinum og þeir einkennast af léttleika og galsa,“ segir Domenico. „Undantekningin á því eru miðjukaflarnir.“

Þetta er sjöunda eða áttunda heimsókn Domenico til Íslands. „Ég vonast til að sjá norðurljósin í þetta skiptið, en ég veit ekki hvort heppnin verður með mér,“ segir hann.

Eftir Íslandsheimsóknina flýgur Domenico heim til Rómar.

„Þaðan held ég rakleiðis í heimabæinn minn til að hitta systur mína. Hún var að eignast barn og verður í vikuheimsókn á Ítalíu, en hún býr í Burkina Faso. Þið losnið samt ekki við mig svo auðveldlega,“ segir Domenico. „Ég kem aftur til Íslands í lok júlí til að spila á Reykholtshátíðinni. Það verður í fyrsta sinn sem ég kem yfir sumartímann.“

Með Domenico á Kjarvalsstöðum spila Laufey Sigurðardóttir, Sigurlaug Eðvaldsdóttir, Þórunn Ósk Marinósdóttir og Bryndís Halla Gylfadóttir á strengjahljóðfæri. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.