Menning

Ragnheiður orðin þriðja vinsælasta sýningin í sögu Íslensku óperunnar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hátt í 15.000 manns hafa nú séð sýninguna eða keypt miða á þær tvær aukasýningar sem verða á verkinu milli jóla og nýárs í Eldborg í Hörpu.
Hátt í 15.000 manns hafa nú séð sýninguna eða keypt miða á þær tvær aukasýningar sem verða á verkinu milli jóla og nýárs í Eldborg í Hörpu. mynd/aðsend
Óperan Ragnheiður eftir Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson hefur nú skipað sér í þriðja sætið á lista yfir aðsóknarmestu óperusýningar Íslensku óperunnar frá stofnun hennar í upphafi 9. áratugarins. Hátt í 15.000 manns hafa nú séð sýninguna eða keypt miða á þær tvær aukasýningar sem verða á verkinu milli jóla og nýárs í Eldborg í Hörpu.

Ragnheiður var frumsýnd í Íslensku óperunni í Hörpu þann 1. mars síðastliðinn, eftir að hafa verið flutt í tónleikaformi í Skálholti sumarið 2013. Sýningin sló samstundis í gegn og spöruðu gestir og gagnrýnendur ekki hrósyrðin.

Alls voru níu sýningar í vor og voru þær allar uppseldar. Sýningin hlaut síðan 10 tilnefningar til Grímunnar í ár og í kjölfarið þrenn verðlaun, þar á meðal Sýning ársins 2014. Þá voru tveir aðalsöngvarar sýningarinnar, Þóra Einarsdóttir í hlutverki Ragnheiðar og Elmar Gilbertsson í hlutverki Daða, nýverið tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir hlutverk sín í sýningunni.

Aðeins óperurnar Sígaunabaróninn og Töfraflautan, sem báðar voru færðar upp á árinu 1982 í Gamla bíói, voru aðsóknarmeiri sýningar en Ragnheiður.

Örfá sæti eru enn laus á aukasýningarnar tvær þann 27. desember og 28. desember, en það eru ennfremur allra síðustu sýningar á óperunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.