Menning

Hafa áhyggjur af samdrætti í tungumálakennslu menntaskóla

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
"MR er eini menntaskólinn sem enn kennir latínu. Það er mjög sorgleg þróun og við viljum meðal annars vekja athygli á henni með þessu málþingi.“
"MR er eini menntaskólinn sem enn kennir latínu. Það er mjög sorgleg þróun og við viljum meðal annars vekja athygli á henni með þessu málþingi.“ Mynd/Úr einkasafni
Í tilefni Evrópska tungumáladagsins, sem haldinn er hátíðlegur þann 26. september ár hvert, stendur Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum fyrir hátíðardagskrá í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneytið og STÍL – Samtök tungumálakennara á Íslandi. Málþingið ber yfirskriftina „Tungumálakunnátta er allra hagur“ og fer fram í stofu 101 í Lögbergi í Háskóla Íslands á morgun frá klukkan 15 til 17.30. Áhersla verður lögð á gildi fornmálanna og almennrar tungumálakunnáttu í víðasta samhengi.



„Við höldum þennan dag hátíðlegan á hverju ári með málþingi fyrir tungumálakennara og áhugafólk um tungumálamenningu,“ segir Guðrún Kristinsdóttir, verkefnisstjóri Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum, spurð um markmið dagskrárinnar. „Í ár erum við með brennandi þema sem eru fornmálin og þriðju málin í tungumálakennslu, það er önnur mál en enska og danska, en kennsla í þessum málum hefur dregist verulega saman og þau eiga í vök að verjast. Í nýju námsskránni er menntaskólunum í sjálfsvald sett hversu mörgum tungumál þeir bjóða upp á kennslu í, auk þess sem töluverð pressa er á að loka tungumáladeildum skólanna og það hefur sums staðar verið gert.“



Guðrún segir steininn þó hafa tekið úr fyrir tveimur árum þegar til hafi staðið að loka fornmáladeildinni í Menntaskólanum í Reykjavík. „Konrektor skólans hringdi þá í Vigdísi Finnbogadóttur sem brá skjótt við, gerðist verndari fornmáladeildar MR og kom þannig í veg fyrir lokun hennar, en MR er eini menntaskólinn sem enn kennir latínu. Það er mjög sorgleg þróun og við viljum meðal annars vekja athygli á henni með þessu málþingi.“



Fjöldi fyrirlesara kemur fram á málþinginu og veltir upp ýmsum spurningum sem þessi þróun kveikir. Þingið er öllum opið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×