Lífið

Scarlett Johansson orðin móðir

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Scarlett og eiginmaður hennar Romain.
Scarlett og eiginmaður hennar Romain. Getty
Leikkonan Scarlett Johansson er orðin móðir en hún eignaðist stúlkubarnið Rose með kærasta sínum Romain Dauriac í síðustu viku.

Dauriac, sem er fyrrverandi blaðamaður, hefur verið trúlofaður Scarlett frá árinu 2013. Fyrir það var hún gift leikaranum Ryan Reynolds.

Scarlett er 29 ára en Romain er 32 ára.

Samkvæmt talsmanni Scarlett styðja hjónin samtökin No Kids Policy, sem hefur það markmið að vernda börn frægra einstaklinga frá papparössum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×