Í nýju fjárlagafrumvarpi er í fyrsta skipti lagður skattur á ferðaþjónustufyrirtæki sem bjóða upp á afþreyingarferðir á borð við hvalaskoðun, flúðasiglingar og hestaferðir.
Nái breytingin fram að ganga mun hún taka gildi 1. maí á næsta ári, rétt í tæka tíð fyrir háannatímabil ferðaþjónustunnar.
Ferðirnar munu fara í lægra skattþrep virðisaukaskatts sem gert er ráð fyrir að verði 12% á næsta ári. Leiða má líkum að því að skatturinn muni skila sér beint út í verð ferðanna og að þær munu því hækka sem nemur skattlagningunni.
Nýr skattur lagður á ferðaþjónustuna
Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
![Skatturinn tekur gildi þann 1. maí nk., rétt í tæka tíð fyrir háannatímabil ferðaþjónustunnar.](https://www.visir.is/i/25123D12673992537FF8B3846BC36AFFC19201615EB253AE0C04AFA1FEBBD26F_713x0.jpg)