Mögnuð sigurkarfa Hayward sá um LeBron | Myndbönd Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. nóvember 2014 07:56 Sigurkarfa Hayward í leiknum í nótt. Vísir/AP
LeBron James og félagar í Cleveland Cavaliers töpuðu enn einum leiknum í NBA-deildinni í nótt, í þetta sinn fyrir Utah Jazz. Utah vann, 102-100, en Gordon Hayward tryggði liðinu sigur með flautukörfu sem má sjá hér fyrir neðan. Hayward og Derrick Favors voru stigahæstir í liði Utah með 21 stig hvor. James skoraði 31 stig fyrir Cleveland og fór á mikinn sprett undir lok leiksins sem dugði þó ekki til. Cleveland hefur unnið aðeins einn af fyrstu fjórum leikjum sínum í haust. Meistararnir í San Antonio unnu Atlanta, 94-92, þar sem gamla brýnið Tim Duncan var með sautján stig og þrettán fráköst. Tony Parker var einnig með sautján stig og Manu Ginobili tólf. Derrick Rose sneri aftur eftir meiðsli í lið Chicago sem vann Milwaukee, 95-86. Hann var með þrettán stig og sjö stoðsendingar á þeim 32 mínútum sem hann spilaði. Taj Gibson var stigahæstur með 23 stig. Rose hefur verið að glíma við alvarleg hnémeiðsli síðustu tvö tímabil en missti af síðustu tveimur leikjum vegna tognunar í ökkla. Memphis og Golden State unnu leiki sína í nótt og eru einu ósigruðu liðin í deildinni ásamt Houston, sem spilaði ekki í nótt. Golden State vann sannfærandi sigur á LA Clippers, 121-104. Steph Curry var með 28 stig og sjö stoðsendingar og Draymond Green bætti persónulegt met með því að skora 24 stig.Úrslit næturinnar: Charlotte - Miami 96-89 Philadelphia - Orlando 89-91 Boston - Toronto 107-110 Brooklyn - Minnesota 91-98 Detroit - New York 98-95 Milwaukee - Chicago 86-95 Washington - Indiana 96-94 San Antonio - Atlanta 94-92 Phoenix - Memphis 91-102 Utah - Cleveland 102-100 Sacramento - Denver 131-109 Golden State - LA Clippers 121-104
NBA Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira