Tíska og hönnun

Klæddu þig eins og stjörnurnar í Scandal

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Kerry í hlutverki Oliviu Pope.
Kerry í hlutverki Oliviu Pope.
ABC Studios hefur samið við verslanakeðjuna The Limited og mun fatalína byggð á sjónvarpsþáttunum Scandal, með Kerry Washington í aðalhlutverki, verða fáanleg í verslunum keðjunnar í haust.

Kerry sjálf, ásamt búningahönnuðinum Lyn Paolo, unnu að línunni ásamt hönnuðinum Elliot Staples hjá The Limited við gerð línunnar.

Í línunni verða toppar, buxur, jakkar og yfirhafnir og er verð frá 49 dollurum, rúmlega 5500 krónum.

Sala á línunni hefst þann 22. september vestan hafs, sama dag og fjórða sería Scandal er frumsýnd.

Dæmi úr Scandal-fatalínunni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×