Íslenskir neytendur verða að blæða Samúel Karl Ólason skrifar 10. júlí 2014 11:13 Jenný Stefanía Jensdóttir, viðskiptafræðingur, sem búsett er í Kanada. Visir/AFP „
Mér fannst umræðan vera komin út í það að þarna væri amerískt fyrirtæki að koma og gera einhverjar þvílíkar afarkröfur og það ætti að fara að svínbeygja öll lög og annað. Það er ekkert þannig. Aðstæður hérna, til dæmis þar sem ég er. Það er ekki selt áfengi í matvöruverslunum og amerískt kjöt er ekki á boðstólum.“ Þetta segir Jenný Stefanía Jensdóttir, viðskiptafræðingur, sem búsett er í Kanada, en hún var gestur í Reykjavík síðdegis í gær. Þar ræddi hún reynslu sína af Costco og í hve miklum villigötum umræðan væri hér á landi. Hún segist hafa verslað í Costo í einn og hálfan áratug. Í hvert sinn sem hún fær Íslendinga í heimsókn fer hún með þá í búðina. „Það er ákveðin glýja sem kemur í augun á fólki og líka sorg. Sorg yfir því að geta ekki flutt þessa vöru sem þau sjá þarna heim í farangrinum.“ Þá segir Jenný að málaflutningur Sigrúnar Magnúsardóttur, þingflokksformanns Framsóknarflokksins, um mögulega komu Costco hingað til lands, hafi gengið fram af sér. „Maður varð bara kjaftstopp.“ „Það er eins og það sé hlaupið í einhverjar útskýringar og hlaupið í kringum heitan graut. Niðurstaðan er sú að þeir vilja ekki fá þessa samkeppni. Það er verið að vernda eitthvað annað og fyrir það verða íslenskir neytendur að blæða. Sí og æ, æ og sí og greiða allt of hátt verð þegar annað býðst.“
Mest lesið Þrír af hverjum fjórum sitja eftir með sárt ennið Innlent Ósáttur með sætin og fær milljón endurgreidda Innlent „Pabbi er að senda þér skilaboð og mamma vill fá að sjá hvað stendur“ Innlent Íris segir RÚV henda blautri og kaldri tusku í andlit sjómanna Innlent „Ef þið haldið mér áfram í fangelsi þá verður vandamál“ Innlent Íbúí í Holtunum smitaðist af hermannaveiki Innlent Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Erlent Skipverji á strandveiðibát í bráðri hættu Innlent Íslandsbankahúsið rústir einar Innlent Hafnaði utanvegar í Vatnsskarði Innlent Fleiri fréttir „Ég er ekki ógnandi maður“ „Við erum að klæða vegi sem eiga að vera malbikaðir“ Íris segir RÚV henda blautri og kaldri tusku í andlit sjómanna Faglært starfsfólk og eftirlit skorti í búsetuúrræðum fyrir börn Skipverji á strandveiðibát í bráðri hættu Ósáttur með sætin og fær milljón endurgreidda Þrír af hverjum fjórum sitja eftir með sárt ennið „Pabbi er að senda þér skilaboð og mamma vill fá að sjá hvað stendur“ Komu fótbrotnum göngumanni til bjargar Íbúí í Holtunum smitaðist af hermannaveiki Stjórnarflokkarnir geti allir haft áhyggjur Íslandsbankahúsið rústir einar Hafnaði utanvegar í Vatnsskarði Umræðan verði að vera málefnaleg Lítið fylgi Framsóknar og kynjaðar paprikur Lenti með höfuðið á malbikinu þegar maður tók fram úr bílalest Landris nú hraðara en fyrir síðasta eldgos Hjálmar segist ekki kærður því það sé ekkert að kæra Tveir góðkunningjar flúðu lögregluna á hlaupahjóli „Nöturlegt“ ef Barnasáttmálinn grípur ekki Yazan Handtóku fjóra eftir að kókaín var sótt á pósthús Fatasöfnunargámar Rauða krossins fjarlægðir á næstu dögum Loka sundhöllinni vegna skorts á leiðbeinendum Ríkisstjórnin líði fyrir efnahagsástandið Yazan vísað úr landi eftir Verslunarmannahelgi „Hefðbundið eftirlit er ekki viðhaft að ástæðulausu“ Stjórnin kærir Hjálmar ekki en telur hann þó sekan Tengja síðustu 102 þorp landsins Segir Sigmund og Bergþór bera sína ábyrgð á Mannréttindastofnun Íslands Ásakanir SFS um græðgi komi úr hörðustu átt Sjá meira