Menning

Peningarnir góð viðurkenning

Ása Helga Hjörleifsdóttir.
Ása Helga Hjörleifsdóttir.
„Það er ekki hægt að gera bíómynd fyrir þennan pening, en viðurkenningin skiptir máli,“ segir Ása Helga Hjörleifsdóttir sem fékk þúsund evrur, eða um 160 þúsund íslenskar krónur, í verðlaun á Berlinale Co-Production Market í gær til að þróa áfram kvikmyndina Svaninn. Kvikmyndin byggir á bók Guðbergs Bergssonar. „Tvö önnur verkefni fengu sömu peningaupphæð í verðlaun. Berlinale Co-Production Market er hugsaður til þess að kynna kvikmyndaverkefni í þróun fyrir meðframleiðendum. Svanurinn verður fyrsta mynd Ásu Helgu í fullri lengd, en hún hefur áður gert stuttmyndina Ástarsögu.

Kvikmyndaverkefnin þrjú sem fengu verðlaun voru valin úr hópnum til að kynna kvikmyndirnar með formlegum hætti fyrir framleiðendum á hátíðinni. „Við höfum fengið ótrúlega jákvæðar viðtökur,“ segir Ása Helga. „Við fengum miklu fleiri fundarbeiðnir með framleiðendum en við gátum annað. Við erum í viðræðum við nokkra framleiðendur sem eru þrautreyndir og hafa gert slatta af flottum myndum. Framhaldið skýrist örugglega á næstu vikum.“

Ása Helga hefur haft lítið svigrúm til þess að horfa á myndir á hátíðinni hingað til. „Mig langar að sjá Nymphomaniac eftir Lars Von Trier,“ segir Ása Helga. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.