Sport

Cristiano Ronaldo með miklu hærri tekjur en Messi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo. Vísir/Getty
Boxarinn Floyd Mayweather er langtekjuhæsti íþróttamaður heims með 105 milljónir dollara í árstekjur, 12,9 milljarða íslenskra króna á ári, en þetta kemur fram í samantekt Forbes.

Hér hefur Forbes-tímaritið lagt saman laun íþróttamannanna við það sem þeir taka inn úr auglýsinga- og styrktarsamningum.

Cristiano Ronaldo  og Lionel Messi eru alltaf í mikilli samkeppni um hvor sér betri knattspyrnumaður en það er engin samkeppni um hvor sé betur launaður.

Cristiano Ronaldo fékk 80 milljónir dollara á síðasta ári eða um 9,9 milljarða íslenskra króna en það er tæplega tveimur milljörðum meira en tekjur Lionel Messi á sama tíma.

Floyd Mayweather er aðeins annar íþróttamaðurinn í sögunni, á eftir Tiger Woods, til að komst yfir hundrað milljón dollara markið.

Fótboltamennirnir Zlatan Ibrahimovic, Gareth Bale, Radamel Falcao og Neymar komast einnig á topp 20 listann en þar eru einnig fjórir NBA-körfuboltaleikmenn (LeBron James, Kobe Bryant, Derrick Rose og Kevin Durant) og þrír tennisspilarar (Roger Federer, Rafael Nadal og Novak Djokovic).

20 tekjuhæstu íþróttamenn heims samkvæmt Forbes:

1. Floyd Mayweather (Bandaríkin - box) 105 milljónir dollara

2. Cristiano Ronaldo (Portúgal - fótbolti) 80

3. LeBron James (Bandaríkin - körfubolti) 72,3

4. Lionel Messi (Argentína - fótbolti) 64,7

5. Kobe Bryant (Bandaríkin - körfubolti) 61,5

6. Tiger Woods (Bandaríkin - golf) 61,2

7. Roger Federer (Sviss - tennis) 56,2

8. Phil Mickelson (Bandaríkin - golf) 53,2

9. Rafael Nadal (Spánn - tennis) 44,5

10. Matt Ryan (Bandaríkin - amerískur fótbolti) 43,8

11. Manny Pacquiao (Filipseyjar - box) 41,8

12. Zlatan Ibrahimovic (Svíþjóð - fótbolti) 40,4

13. Derrick Rose (Bandaríkin - körfubolti) 36,6

14. Gareth Bale (Bretland - fótbolti) 36,4

15. Radamel Falcao (Kólumbía - fótbolti) 35,4

16. Neymar (Brasilía - fótbolti) 33,6

17. Novak Djokovic (Sviss - tennis) 33,1

18. Matthew Stafford (Bandaríkin - amerískur fótbolti) 33

19. Lewis Hamilton (Bretland - formúla eitt) 32

20. Kevin Durant (Bandaríkin - körfubolti) 31,9

Skipting eftir íþróttagreinum:

Fótbolti 6

Körfubolti 4

Tennis 3

Golf 2

Amerískur fótbolti 2

Box 2

Formúla eitt 1




Fleiri fréttir

Sjá meira


×